fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Eyjan

„Hafa viðlíka svik sést í sögu verkalýðsbaráttu á þessu landi?“

Eyjan
Miðvikudaginn 18. janúar 2023 16:33

Sólveig Anna Jónsdóttir, mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er gáttuð á nýjustu fregnum af Starfsgreinasambandinu (SGS) – um að sambandið sé nú byrjað í samningaviðræðum við Samtök atvinnulífsins (SA) um nýjan langtímasamning til að taka við af þeim samningi sem nýlega var samþykktur.

Sólveig veltir því fyrir sér á Facebook hvort að ekki sé um met í „lágkúru“ að ræða.

„Þetta hlýtur að vera eitthvað met í lágkúru: Í staðinn fyrir að styðja Eflingu, félag í harðri kjaradeilu, félag sem tilheyrir Starfsgreinasambandinu og er þar langstærst, ræðst forysta SGS í örvæntingu sinni yfir því að Efling nái betri samningi að okkur við hvert tækifæri með sífellt yfirgengilegri málflutningi. Og nú er forystan komin í sýndar-viðræður við SA í stað þess að setja þar pressu á um að samið verði samstundis við Eflingu! Hvers konar fólk gerir svona?“

Sólveig veltir því fyrir sér hvort viðlíka svik hafi áður sést í sögu verkalýðsbaráttu hér á landi.

„Hafa viðlíka svik sést í sögu verkalýðsbaráttu á þessu landi? Ég spyr í fullri alvöru. Og er ekki tímabært að forysta SGS láti kjósa um það að Efling sé einfaldlega rekin úr sambandinu í stað þess að halda áfram að féfletta félagið og verkafólk höfuðborgarsvæðisins, meðlimi Eflingar? Er það ekki hreinlegra en þetta sjúka framferði sem við verðum nú vitni að? Getur þetta fólk í alvöru réttlætt fyrir sér að taka við fjármunum verkafólks höfuðborgarsvæðisins til að borga undir þá ömurð sem við þurfum að horfa upp á?“

Sólveig segir að hún myndi segja „þessu fólki“ að skammast sín, en efast þó um að það hefði nokkuð gagn.

„Ég myndi segja þessu fólki að skammast sín en ég held að þau kunni það ekki. En skömm þeirra er sannarlega mikil og mun aldrei gleymast“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur