„Hún er búin að vera að leita að hákarlatönnum síðan hún var eins árs gömul að skríða yfir ströndina,“ segir móðir hinnar 9 ára gömlu Molly Sampson. Molly vildi fá vaðskó í jólagjöf í fyrra svo hún gæti farið í sjóinn og leitað að tönnum. Hún fékk þá ósk uppfyllta og fór beint út í sjó að leita að stórum tönnum ásamt systur sinni og föður.
Það liðu ekki 30 mínútur áður en Molly hafði fundið fyrstu tönnina. „Ég fór nær og ég hugsaði með mér: Vá, þetta er stærsta tönn sem ég hef nokkurn tímann séð,“ segir hún um fundinn í samtali við NPR. „Ég teygði mig og greip hana, pabbi segir að ég hafi öskrað.“
Þetta var ansi ótrúlegur fundur hjá þessari 9 ára stelpu en tönnin sem hún fann var 5 tommur, tæplega 13 sentimetrar, að lengd og um 15 milljón ára gömul tönn úr megalodon hákarli. Molly segist strax hafa verið handviss að um tönn úr þessum risastóra hákarli væri að ræða. „Ég sá bara formið á henni og ég veit hvernig tennurnar úr þeim líta út.“
Hákarlatannasafn Molly telur nú yfir 400 tennur samkvæmt USA Today. Hún útskýrir að hægt sé að gera ráð fyrir stærð hákarlsins út frá stærð tannarinnar. „Hver tomma er 10 fet,“ segir hún. „Svo þessi er 5 fet svo hann hefur verið 50 fet.“ 50 fet eru um 15,2 metrar svo miðað við útreikningana er tönnin svo sannarlega úr stórum hákarli.
Molly á ekki langt að sækja hæfileikana þegar kemur að því að leita að fornleifum en faðir hennar, Bruce, hefur leitað að slíkum nánast alla ævi. Hann hefur svo dregið bæði Molly og systur hennar, Natalie, inn í fornleifafræðina. Þrátt fyrir að Bruce hafi leitað að fornleifum í áraraðir þá er stærsta tönnin sem hann hefur fundið aðeins um 3 tommur að stærð. Eiginkona hans segir að sú tönn líti út fyrir að vera barnatönn miðað við tönnina sem Molly fann.