fbpx
Miðvikudagur 11.desember 2024
Fréttir

Rafmagnleysið í gær – Vilja að Landsnet axli ábyrgð og segja fyrirtækið haldið „þráhyggjukenndri andstöðu“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 17. janúar 2023 13:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landvernd telur að tveggja stunda rafmagnsleysið á Suðurnesjum í gær veki upp spurningar um getu Landsnets til að sinna hlutverki sínu. Telur Landvernd að fyrirtækið hafi fríað sig ábyrgð með vísun til þess að líklega hefði ekki farið svona illa ef Suðurnesjalína 2 hefði verið reist samkvæmt vilja Landsnets. 

Í tilkynningu frá Landvernd segir: „Að rafmagn skulu fara af á hæglætis vetrardegi á svæði með tveimur stórum virkjunum bendir til þess að vandinn sé flóknari en Landsnet lætur í veðri vaka. Er rafmagnsleysið hugsanlega enn eitt dæmið um að forgangsröðun, uppbygging og stýring íslenska raforkukerfisins sé gölluð? Staðreyndin er a.m.k. sú að á Suðurnesjum hafa Landsnet og HS Orka ekki borið gæfu til að byggja kerfið upp á öruggan hátt, hvorki með tilliti til náttúruvár, samfélags né umhverfis.“

Virkjanir sem ættu að nægja til að mæta eftirspurn

Óskiljanlegt sé að virkjanir í Svartsengi og Reykjanesi geti ekki starfað án tengingar við aðra hluta landskerfisins.

„Stærð virkjananna er sannarlega næg til að mæta eftirspurn eftir rafmagni á Suðurnesjum. Skýringin getur ekki verið sú að gufuaflsvirkjanir ráði ekki við framleiðslu og stýringu á raforku án tenginga við vatnsaflsvirkjanir því meginhluti raforkuframleiðslu heimsbyggðarinnar er knúinn sambærilegum gufutúrbínum – og þar er þetta ekki vandamál. En virkjanir í Svartsengi og á Reykjanesi virðast ekki ráða við að tengingin við landsnetið rofni.

Gufuaflsvirkjanir Landsvirkjunar ráða við „eyjukeyrslu“ án tengingar við landskerfið. Kröfluvirkjun hefur ítrekað séð Norðurlandi fyrir raforku án tengingar við aðra landshluta. Hvers vegna hafa Landsnet og HS orka ekki kippt þessu í lag á Suðurnesjum? “

Þráhyggjukennd andstaða

Landsnet hafi að auki ekki „borið gæfu“ til að tvöfalda raforkutengingar milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur. Enginn hafi sett sig á móti slíkri tvöföldum.

„Megin vandinn í afstöðu Landsnets er þráhyggjukennd andstaða við að leggja jarðstreng í vegöxl Reykjanesbrautar. Landsnet heldur sig alfarið við nýja loftlínu samsíða eldri línu, þrátt fyrir að mat á umhverfisáhrifum segi að jarðstrengjaleiðin sé betri kostur.“ 

Hafi sveitarfélagið Vogar árum saman bent á að farsælast væri að leggja Suðurnesjalínu sem jarðstreng í vegöxl Reykjanesbrautar í staðinn fyrir nýja loftlínu sem sé samsíða línunni sem fyrir er og sé útsett þar af leiðandi fyrir sömu náttúruvá.

„Eldsumbrotin á svæðinu undanfarin ár eru til vitnis um að óskynsamlegt er að tengingar við Suðurnes liggi samsíða.

Í nýlegri greinargerð Dr. Ástu Rutar Hjartardóttur jarðeðlisfræðings hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands kemur fram að núverandi loftlína sé á „mjög erfiðu svæði innan sigdals Eldvarpa-Svartsengis kerfisins. Komi til eldsumbrota er næsta víst að erfitt verður að verja línuna sökum staðsetningar hennar og afhendingaröryggi mun skerðast.“ Með með tilliti til jarðvár sé því öruggara að leggja jarðstreng meðfram Reykjanesbraut en loftlínu meðfram eldri línu. “

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Eldri borgari vann 70 milljónir og nýbakaður tvíburapabbi 35 milljónir í Happdrætti Háskólans

Eldri borgari vann 70 milljónir og nýbakaður tvíburapabbi 35 milljónir í Happdrætti Háskólans
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Sérfræðingar telja að enn sé tími til að stökkva á Bitcoin-vagninn

Sérfræðingar telja að enn sé tími til að stökkva á Bitcoin-vagninn
Fréttir
Í gær

Gamla góða Cocoa Puffs aftur á leið í verslanir

Gamla góða Cocoa Puffs aftur á leið í verslanir
Fréttir
Í gær

Var með mikið magn af OxyContin innvortis

Var með mikið magn af OxyContin innvortis
Fréttir
Í gær

Drápshundarnir í Langholtshverfi hafa drepið ketti og ráðist á fólk – „Hundarnir endurspegla eigendurna“

Drápshundarnir í Langholtshverfi hafa drepið ketti og ráðist á fólk – „Hundarnir endurspegla eigendurna“
Fréttir
Í gær

Mangione sagður hafa „misst vitið“ eftir sársaukafulla aðgerð

Mangione sagður hafa „misst vitið“ eftir sársaukafulla aðgerð