Fundu úran á Heathrow – Hryðjuverkalögreglan rannsakar málið
Málið hefur vakið upp spurningar um af hverju efnið var sent til Bretlands og til hvers hafi átt að nota það. Þá vekja tengsl hins handtekna við Íran áhyggjur en óhætt er að segja að samband Bretlands og Írans sé stirt um þessar mundir. Þá er vitað að klerkastjórnin í Íran hikar ekki við að styðja við bakið á hryðjuverkamönnum um allan heim og stendur sjálf á bak við hryðjuverk.
Þegar maðurinn var handtekinn á laugardaginn var það gert á grundvelli níundu greinar hryðjuverkalaganna en hún nær yfir „Aðila sem eru með eða eru að undirbúa geislavirk efni sem er hægt að nota til hryðjuverka“.
Pakkinn var stílaður á fyrirtæki á svæðinu en hann var sendur frá Pakistan. Fyrirtækið virðist vera í eigu hins handtekna en það flytur að sögn inn brotamálma. Maðurinn hefur nú verið látinn laus gegn tryggingu.
„Þetta er að sjálfsögðu þróun sem vekur áhyggjur. Ég vil gjarnan leggja áherslu á að þrátt fyrir þessa handtöku, sem var gerð á grunni vitneskju okkar, steðjar engin ógn að almenningi. Við höldum rannsókninni þó áfram til að tryggja að svo verði áfram,“ sagði Richard Smith, hjá hryðjuverkavarnardeild Lundúnalögreglunnar, á fréttamannafundi á sunnudaginn.
Philip Ingram, fyrrum starfsmaður bresku leyniþjónustunnar, sagðist í samtali við The Telegraph hafa áhyggjur af málinu og hvaða fyrirætlanir búa að baki sendingunni: „Það er alveg örugglega möguleiki á að hér hafi verið um einhverskonar könnunarsendingu eða generalprufu að ræða, til að rannsaka hvernig öryggismálum er háttað.“
Hann sagði að hægt sé að nota geislavirkt úran á margvíslegan hátt en það hversu lítið magn var um að ræða í sendingunni geti bent til að um generalprufu hafi verið að ræða.