fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Fókus

Sögð hafa tekið „furðulegt æðiskast“ á veitingastað og að eiginmaðurinn hafi rokið á dyr

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 16. janúar 2023 16:29

Myndir/Getty/Instagram/TMZ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngkonan Britney Spears gefur fingurinn í nýju myndbandi á Instagram. Hún birti myndbandið í kjölfar frétta um atvik á veitingastað í LA.

TMZ greinir frá því að Britney hafi tekið „furðulegt æðiskast“ á veitingastaðnum Joey, sem hafi orðið til þess að eiginmaður hennar, leikarinn Sam Asghari, hafi rokið á dyr.

Vitni sögðu við miðillinn að Britney og Sam hafi verið á staðnum með lífverði og að staðurinn hafi verið fullur af gestum sem þekktu strax stjörnuna og byrjuðu að taka myndir og myndbönd af henni.

Uppátæki þeirra kom Britney í uppnám að sögn vitna og hafi hún í kjölfarið farið að hegða sér einkennilega.

Vitni sögðu að Britney hafi orðið „manísk“ og byrjað að öskra „eitthvað algjört bull.“ Þau sögðu einnig að Sam hafi greinilega orðið pirraður og hafi skyndilega staðið upp og rokið á dyr.

Að sögn vitnanna yfirgaf Britney staðinn nokkrum mínútum seinna.

Segir þetta ekki satt og starfsmaður tekur undir

TMZ birtir myndir og myndbönd af Britney á staðnum, en hins vegar sést hún ekki vera „manísk“ og „tala tungum“ eins og vitni sögðu. Einnig var TMZ ekki með undir höndunum myndband af Sam yfirgefa staðinn.

Sam hefur nú rofið þögnina og sakar slúðurmiðillinn um lygar.

„Það var ekki Britney sem var með læti, það var annar veitingagestur sem hætti ekki að taka myndir af henni í leyfisleysi,“ sagði starfsmaður Joey við Page Six.

Gefur fingurinn

Britney birti myndband á Instagram í gær þar sem hún dansar og gefur myndavélinni fingurinn nokkrum sinnum. Erlendir miðlar draga þá ályktun að myndbandið tengist fréttaflutningi af atvikinu á veitingastaðnum en söngkonan hefur ekki tjáð sig um það að svo stöddu.

Hún lokaði fyrir athugasemdir við færsluna en tæplega 300 þúsund manns hafa líkað við það.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Channel 8 (@britneyspears)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Skothelt vetrarráð: „Framrúðan mun þiðna miklu hraðar“

Skothelt vetrarráð: „Framrúðan mun þiðna miklu hraðar“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hefur búið á Íslandi í 5 ár en það er eitt sem kemur henni alltaf á óvart

Hefur búið á Íslandi í 5 ár en það er eitt sem kemur henni alltaf á óvart