fbpx
Mánudagur 06.janúar 2025
Fréttir

Kleini innritar sig í langtímameðferð

Fókus
Laugardaginn 14. janúar 2023 12:30

Kristján Einar Sigurbjörnsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhrifavaldurinn Kristján Einar Sigurbjörnsson, betur þekktur sem Kleini, greinir frá því á Instagram að hann hafi tekið þá ákvörðun að fara í langtímameðferð á Krýsuvík og leggist inn á miðvikudag í næstu viku. Segist hann ætla að dvelja þar í eins marga mánuði og hann telji sig þurfa til að rétta úr kútnum.

Mikið hefur gengið á í lífi Kleina undanfarið árið, sambandsslit við söngkonuna Svölu Björgvins, handtaka og fangelsisvist í átta mánuði á Spáni þar sem hann upplifði hreint helvíti að eigin sögn og síðan handtaka á Húsavík um áramótin. Háværar sögur voru um að Kleini væri grunaður um alvarlega líkamsárás en hann hefur vísað því alfarið á bug og sagt að aðgerð lögreglunnar hafi verið vegna gruns um að hann hefði verið að keyra undir áhrifum. Vímuefnapróf hefði þó leitt í ljós að svo var ekki og því hafi honum verið sleppt skömmu síðar.

Hefur Kleini verið ófeiminn við að lýsa því að hann hafi átt erfiðar stundir síðustu misseri sem stundum hafi nánast reynst honum um megn. Hann ætli þó að leita sér hjálpar áður en ástandið versnar.

„Þetta er stórt skref fyrir mig og ég vona að Jesú sé að fylgja mér í rétta átt,“ segir Kleini.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Baldri tókst að skjóta föður sínum ref fyrir rass og kom sér rækilega á kortið

Baldri tókst að skjóta föður sínum ref fyrir rass og kom sér rækilega á kortið
Fréttir
Í gær

Tónlistarmaðurinn Árni Grétar „Futuregrapher“ Jóhannesson er látinn

Tónlistarmaðurinn Árni Grétar „Futuregrapher“ Jóhannesson er látinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögmenn gagnrýna að „fyrirtæki úti í bæ“ rannsaki umferðarslys

Lögmenn gagnrýna að „fyrirtæki úti í bæ“ rannsaki umferðarslys
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur með ákall eftir umdeildar hækkanir: „Getum við ekki öll verið nokkuð sammála þessu?“

Vilhjálmur með ákall eftir umdeildar hækkanir: „Getum við ekki öll verið nokkuð sammála þessu?“