Ellilífeyrisþegi í Þýskalandi er grunuð um að hafa drepið herbergisfélaga sinn þar sem súrefnisvél, sem herbergisfélaginn notaðist við, fór í taugarnar á henni.
Hatun C. er 73 ára og var sjúklingur á Covid-deildinni á sjúkrahúsi í Mannheim Þýskalandi. Hún er sögð hafa í tvígang slökkt á súrefnisvél herbergisfélaga síns þar sem lætin í vélinni fóru í taugarnar á henni og héldu fyrir henni vöku. Herbergisfélaginn, hin 79 ára Hilal K, lét lífið í kjölfarið sökum súrefnisskorts.
Hatun C. hefur verið handtekin og er grunuð um manndráp eftir atvikið, sem átti sér stað í lok nóvember. Sonur hennar, Aydin C sagði við fjölmiðla í Þýskalandi að móðir hans hafi verið örvæntingafull í kjölfar þess að súrefnisvélin hélt fyrir henni vöku í lengri tíma. Hún hafi einnig verið undir áhrifum lyfja og hafi ekki viljað skaða herbergisfélagann.
„Móðir mín gat ekki lokað augunum því súrefnisvélin í næsta rúmi gaf frá sér svo mikinn hávaða sem helst minnti á traktor.“
Hann sagði að móðir hans hafi aldrei gert neitt af sér.
„Nú er hún í fangelsi sem gömul og hrum kona með alvarleg hjartaveikindi. Ég er hræddur um að hún láti þarna lífið. Hún hefur enga hugmynd um hvað hún gerði.“
Aydin segir að móðir hans hafi veikst af Covid á fríi í heimalandi sínu, Tyrklandi, og hafði verið í slæmu andlegu ástandi þegar hún var lögð inn á sjúkrahúsið í Mannheim.
Starfsmenn á spítalanum munu hafa sagt Hatun til syndanna eftir að hún slökkti á vélinni í fyrra skiptið, en sonur hennar bendir á að móðir hans hafi ekki skilið það tiltal því hún talar bara tyrknesku.
„Mamma getur hvorki lesið né skrifað og hún talar bara tyrknesku. Hvernig átti hún að skilja fyrirlestur þýska hjúkrunarfræðingsins. Hún vissi heldur ekkert um vélar, annars hefði hún ekki gert þetta. Þeir hefðu geta fært móður mína í annað herbergi, í það minnsta hefði átt að hafa samband við okkur strax og þá hefði þetta aldrei gers.“
Aydin skilaði þó samúðarkveðju og afsökunarbeiðni til fjölskydu hinnar látnu. „Móðir mín var sjálf fórnarlamb aðstæðna á sjúkrahúsinu. Hún sér virkilega eftir þessu og biður um fyrirgefningu.“
Dóttir hinnar látnu gaf þó lítið fyrir afsökunarbeiðnina.
„Þessi kona drap líklegast móður mína. Ég get ekki fyrirgefið henni það.“
Nú stendur yfir réttarmeinarannsókn á Hilal til að ákvarða hvort Hatun hafi í raun og veru orsakað andlátið.