Sky News segir að Jake Hanrahan, sem starfar sem sjálfstæður blaðamaður, hafi gert myndina, sem er aðgengileg á YouTube, þar sem hann ræðir við tvo félaga í rússneskum „stjórnleysis-kommúnistahópi“ sem er þekktur sem BOAK. Þetta eru róttæk samtök vinstri manna sem höfðu frekar óljós og óraunhæf stefnumál áður en Rússar réðust inn í Úkraínu.
Eldar hafa brotist út víða í Rússlandi á undanförnum mánuðum, til dæmis á rannsóknarstofum, verslunarmiðstöðvum og verksmiðjum. Radio Free Europe segir að úkraínskum skemmdarverkamönnum hafi verið kennt um þetta og jafnvel vestrænum leyniþjónustustofnunum.
Hanrahan segir hins vegar að „umfangsmikil og virk andspyrna“ sé til staðar í Rússlandi. Í myndinni segja félagar í BOAK honum að skæruliðar hafi gert árásir allt frá Kaliningrad, í vestri, til Vladivostok, í austri, um allt land. Nánast í öllum stórum borgum sem og litlum.
Eru skæruliðarnir sagðir nota heimagerðar sprengjur, upplýsingar sem þeir afla sér á Internetinu og stunda njósnir um væntanleg skotmörk.
BOAK segir að um 30 hópar um allt Rússland starfi saman og markmið þeirra sé að grafa undan ráðamönnum í Kreml.
Ef liðsmenn samtakanna nást þá bíður þung refsing þeirra en þeir segja: „ef við tökum ekki þessa áhættu, þá bíður okkar engin framtíð“.