Króatíska fyrirsætan Ivana Knoll var af mörgum, þar á meðal enskum götublöðum, talin sý kynþokkafyllsta á Heimsmeistaramótinu í Katar.
Knoll fylgdi króatíska landsliðinu alla leið í Katar og vakti gríðarlega athygli. Króatía tapaði í undanúrslitum HM fyrir Argentínu en vann leikinn um bronsið gegn Marokkó.
Þegar þetta er skrifað er Knoll með 3,6 milljónir fylgjenda á Instagram. Hefur fjöldinn aukist um fleiri hundruð þúsund á síðustu vikum.
Knoll var í Katar í mánuð þar sem hún virtist njóta lífsins í sandinum og sólinni.
Sem fyrr segir jukust vinsældir Knoll gífurlega í Katar. Nú hefur hún sýnt frá því að færslur hennar á Instagram hafi getað náð til næstum milljarðs notenda á samfélagsmiðlinum í desember mánuði.
Nánar til tekið var Knoll með næstum milljarð impressions á Instagram. Vísar það til hversu oft færslur þínar gætu hafa ratað til notenda.