Andri Rúnar Bjarnason er að öllum líkindum á förum frá ÍBV á næstunni.
Daníel Geir Moritz, formaður knattspyrnudeildar ÍBV, sagði í samtali við 433.is fyrir stuttu að framherjinn hafi sóst eftir því að fara frá félaginu vegna breyttra aðstæðna hjá sér og að það hafi verið samþykkt.
Ekki er ljóst sem stendur hvert Andri heldur næst.
Andri gekk í raðir ÍBV frá Esbjerg fyrir síðustu leiktíð í Bestu deild karla.
Hann hélt út í atvinnumennsku eftir að hafa farið á kostum með Grindavík sumarið 2017.
Fyrst fór Andri til Helsingborg í Svíþjóð og síðar Kaiserslautern, áður en hann fór til Esbjerg.
Andri skoraði tíu mörk í 25 leikjum í Bestu deildinni í fyrra. ÍBV hafnaði í áttunda sæti, öðru sæti neðri hluta deildarinnar.