Bjórinn Steðjakveðja er nýársbjór sem fáanlegur er í takmörkuðu upplagi í Vínbúðum. Bjórinn er samstarfsverkefni brugghúsanna Borg og Steðja en hið síðarnefnda lagði upp laupana fyrr á árinu. Bjórinn, að sögn höfunda, er einhverskonar „þjóðlegur snúningur á amerískri austurstandar humlasprengju, er heil 9% alkóhól af rúmmáli og meðal annars bruggaður úr íslenskum hampi.“
„Við brugguðum bjórinn meðal annars úr umtalsverðu magni af hampi frá Flúðum. Það var alltaf á teikniborðinu að nýta hamp þar sem Steðji tók svolítið á skarið með slíka þróun hér heima og við áttum alltaf eftir að prufa þetta. Það var því ákveðið að gera stóra útgáfu af honum, sem Double IPA sem væri eins mikið „dank” eða sem næst lykt af marijuana eins og við kæmumst. Hampurinn leikur þar sennilega takmarkað hlutverk en við nýttum gríðarlega mikið magn af humlinum Simcoe sem hefur svipaða eiginleika hvað varðar lykt – en það er skemmtilegt að segja frá því að hampplantan og humlaplantan eru talsvert skyldar,“ segir Halldór Darri Guðjónsson, bruggmeistari Brugghússins Borg.
„Það er vaninn hjá okkur undanfarin ár að gefa út áramóta- eða nýársbjóra í sambruggi með öðrum íslenskum brugghúsum,“ útskýrir Halldór. „Þetta árið ákváðum við að heyra í Steðjamönnum sem lokuðu brugghúsinu fyrr á árinu og seldu brugggræjurnar en þeir höfðu aldrei bruggað sambrugg áður og okkur fannst vanta frá þeim einhverskonar lokaorð. Steðji voru brautryðjendur á vissan hátt og það er mikil eftirsjá af þeim. Þeir fóru ótróðnar slóðir með þorrabjórinn Hval sem bruggaður var með hvalseistum eins og frægt er og voru einnig fyrsta brugghús landsins til að selja bjór sinn á netinu – en þeir keyrðu sendibíl hringinn í kringum landið oftar en einu sinni til þess eins og að koma bjórnum sínum beint í hendur viðskiptavina. Eins og verið hefur í fréttum undanfarið tók yfirvaldið einnig slag við þá sökum þessa og lauk þeim dansi nú rétt fyrir jól þegar Lögreglan á Vesturlandi felldi niður málið gegn Steðja.“
„Dósina myndskreytti Páll Ivan frá Eiðum. Hann er með annan fótinn í Borgarnesi og nýtti leiktækin á Bjössaróló sem „inspó“ fyrir listaverkið sem prýðir dósina. Viðtökur hafa verið afar góðar og mjög gaman að geta sagt takk og bless við Steðja með þessum hætti!“ segir Halldór að lokum.
Bjórinn er, sem fyrr sagði, fáanlegur í Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, og er, eftir því sem blaðamaður kemst næst, eini íslenski hampbruggaði bjórinn sem hið opinbera selur í sínum verslunum.