Skiptum er lokið í þrotabúi glerja- og speglafyrirtækisins Megna ehf. Félagið var úrskurðað gjaldþrota 11. febrúar á þessu ári en skiptum var lokið þann 22. desember síðastliðinn. Samkvæmt tilkynningu í Lögbirtingablaðinu í morgun voru lýstar kröfur tæplega 428 milljónir króna Að frádregnum skiptakostnaði var ráðstafað upp í lýstar sértökukröfur kr. 4.697.392, upp í búskröfur kr. 14.594.475 og upp í veðkröfur kr. 26.356.523. Samtals nam úthlutun kr. 45.648.390 eða 10,68% af lýstum kröfum.
Fyrirtækið hét áður Glerborg en í febrúar 2021, ári fyrir gjaldþrotið, seldi fyrirtækið gler- og speglastarfsemi sína auk vörumerkisins yfir til Íspan og tók upp nafnið Megna. Samkvæmt viðtali Markaðs Fréttablaðsins við Rúnar Árnason, framkvæmdastjóra Megna, var ætlunin að einbeita sér að sértækari þjónustu, til að mynda gluggalausnir fyrir verktaka.
Þær áætlanir gengu ekki eftir og í lok október óskaði fyrirtækið eftir að fara í greiðslustöðvun. Sagði Rúnar í viðtali við Morgunblaðið að ástæðuna mætti rekja að stórum hluta til Covid-19 faraldursins.
„Tap á rekstrinum er margþætt. Covid-19 hægði á öllu í langan tíma eins og flestum er ljóst. Covid-19 hægði og/eða stoppaði framleiðslu okkar, sama gilti um flutning til landsins. Miklar tafir kosta mikla peninga. Miklar og óvæntar erlendar kostnaðarverðshækkanir eru ein afleiðingin til viðbótar. Vogun tapar, launahækkanirnar miklu höfðu neikvæð áhrif og munu gera til lengri tíma. Allt þetta tekur í,“ sagði Rúnar og því hefði verið tekin sú ákvörðun að óska eftir greiðslustöðvun til að lágmarka skaðann.