fbpx
Mánudagur 23.desember 2024
Fókus

Eitís jólakaffiboð töfrað fram í kvöld

Fókus
Þriðjudaginn 20. desember 2022 20:50

Sjöfn Þórðar og Guðrún Sigríður, ávallt kölluð Gunna Sigga, sem vann brauðtertukeppnina í ár. Hún sigraði í aðalflokknum fyrir bragðbestu brauðtertuna sem er vestfirsk alla leið. Hún sýnir trixin við brauðtertugerðina í þætti kvöldsins. MYND/VALLI

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjónvarpsþátturinn Matur og heimili verður að vanda á dagskrá Hringbrautar í kvöld. Jólin nálgast óðum og Sjöfn fær góðan gest í heimsókn í eldhús og býður í eitís jólakaffi í framhaldinu. Guðrún Sigríður Matthíasdóttir, ávallt kölluð Gunna Sigga, sem kom og sá og sigraði á Íslandsmótinu í brauðtertukeppni ársins sem haldin var hjá Ormsson í tilefni 100 ára afmælis Ormsson kemur í eldhúsið og fullkomnar brauðtertuna sem er vestfirsk alla leið.

Gunna Sigga sýnir áhorfendum brautertugerðina frá grunni og ljóstra upp góðum trixum þegar góða brauðtertu skal gjöra. „Ég er mikil brauðtertukona og hef ávallt gert mikið af brauðtertum. Þessa brauðtertu hef ég gert lengi en bæti við hana einu leynihráefni sem toppar bragðið, bragðið sem heillaði dómnefndina upp úr skónum,“ segir Gunna Sigga.

Eitís jólakaffiboð töfrað fram
Í framhaldinu býður Sjöfn í eitís jólakaffi eins og þau gerast best og færi til liðs við sig Hrafnhildi Þorleifsdóttur blómskreyti og eiganda Blómagallerísins við Hagamel og Elvu Ágústsdóttur stílista við dekkað jólakaffiborðið í eítís stíl þar sem vinnings-brauðtertan er komin í jólabúninginn, jólasmákökur og fleira góðgæti framreidd sem laðar bæði auga og munn.

Hinir fáguðu og glæsilegu mánaðarbollar eru dregnir fram og jólasmákökurnar sem nutu mikilla vinsælda á eitís árunum prýða kaffihlaðborðið. Hrafnhildur rifjar upp þemað í jólaskrautinu á eitís árunum og leyfir þeim litatónum sem þá ríktu að njóta í eitís jólakaffinu. Þegar stílistinn og blómaskreytirinn koma saman gerast töfrarnir eins og sjá má í þætti kvöldsins. Sjöfn og gestir þáttarins eiga ljúfa jólastund þar sem bernskuminningarnar eru rifjaðar upp um baksturinn og jólakaffiboðin

Jólalegur og skemmtilegur þáttur fram undan á Hringbraut í kvöld klukkan 19.00 og aftur klukkan 21.00.

Brot úr þætti kvöldsins má sjá hér:

Matur og heimili stikla 20. desember
play-sharp-fill

Matur og heimili stikla 20. desember

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Dennis Rodman með yfirlýsingu eftir að dóttir hans varpaði sprengju

Dennis Rodman með yfirlýsingu eftir að dóttir hans varpaði sprengju
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jólakort ársins frá Vilhjálmi og Katrínu

Jólakort ársins frá Vilhjálmi og Katrínu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Myndir af leikkonunni settu allt á hliðina og nú svarar hún tröllunum fullum hálsi – Málið vekur upp spurningar um kröfur karla til kvenna

Myndir af leikkonunni settu allt á hliðina og nú svarar hún tröllunum fullum hálsi – Málið vekur upp spurningar um kröfur karla til kvenna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Dennis Rodman fær það óþvegið frá dóttur sinni

Dennis Rodman fær það óþvegið frá dóttur sinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Kynlífsathöfnin sem Christina Aguilera fær ekki nóg af

Kynlífsathöfnin sem Christina Aguilera fær ekki nóg af
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fyrsta stefnumótið var fyrir tíu árum á Litla-Hrauni: „Ég fór þarna út með hjartað í brókinni og stjörnur í augunum“

Fyrsta stefnumótið var fyrir tíu árum á Litla-Hrauni: „Ég fór þarna út með hjartað í brókinni og stjörnur í augunum“
Hide picture