Það var einmitt þannig sem það var hjá Nathan Marsh, 26 ára Walesverja, og Bethan Walling, 26 ára unnustu hans. Hún sá ein um þrifin.
Dag einn bað hún Nathan um aðstoð við þrifin og varð hann við þeirri beiðni hennar. Það var því stór stund þegar hann tók loksins til hendinni á heimilinu.
En hann sá nær samstundis eftir að hafa samþykkt að hjálpa til. Ástæðan er að fjögurra vikna sjúkrahúsdvöl og sex vikur í gipsi eru engin skemmtun.
Mirror hefur eftir Bethan að hún hafi fundið Nathan liggjandi fyrir neðan stigann og hafi hann verið flæktur í ryksugusnúruna og hafi ekki getað gengið.
Hún sagðist í fyrstu hafa talið að hann væri að grínast en fljótlega hafi komið í ljós að svo var ekki. Hún hjálpaði honum upp í sófa og hringdi síðan eftir sjúkrabíl.
Gangurinn var of þröngur til að hægt væri að aka Nathan út í hjólastól og því þurftu sjúkraflutningsmenn að kalla eftir aðstoð slökkviliðsins. Slökkviliðsmenn komu því á vettvang og aðstoðuðu við að koma honum út úr húsinu. Það tókst með því að festa hann við planka og bera þannig út.
Bethan sagði að Nathan sé á batavegi og losni ekki við að taka þátt í heimilisstörfunum þrátt fyrir þetta óhapp. Hann sjái þó aðallega um uppvaskið því hann sé ansi góður í því.