Katrín Edda Þorsteinsdóttir og eiginmaður hennar Markus eignuðust stúlku í gær., laugardag. Hefur hún deilt ferlinu með fylgjendum sínum en auk þess að vera verkfræðingur er Katrín Edda einn vinsælasti áhrifavaldur landsins, með um 30 þúsund fylgjendur.
Litla stúlkan er fyrsta barn foreldra sinna en eins og kom framí viðtali við mbl.is í sumar var Katrínu Eddu sagt af læknum að það yrði henni erfitt að eignast börn.
„Og skyndilega breyttist allt. Fjölskylda. 4.050 gramma 51 centimetra fullkomnun kom í heiminn í kvöld,“ skrifar Katrín Edda á Instagram.