Vegan laufabrauðin hafa notið mikilla vinsælda síðustu ár og er ómissandi hluti jólahaldsins hjá mörgum.
„Síðustu jól hafa vegan laufabrauðin selst upp hjá okkur en við ætlum að reyna að tryggja nægilegt framboð þessi jól. Eftirspurnin hefur hreinlega komið okkur á óvart,” segir Linda Ýr Stefánsdóttir, verslunarstjóri hjá Veganbúðinni.
Hún segir að íslenska vegan samfélagið verður sífellt stærra og vöruþróunin eftir því. ,,Það er svo ótrúlega gott að fólk geti verið partur af jákvæðri þróun án þess að þurfa að fórna því sem þeim þykir gott. Þess vegna erum við alsæl með að Gæðabakstri hafi tekist svona vel að steikja laufabrauð án dýraafurða,“ segir hún.
Stórhrifin af laufabrauðshefð Íslendinga
Jewell Chambers, bandaríski áhrifavaldurinn sem býr hér á landi og heldur úti All Things Iceland á samfélagsmiðlum er stórhrifin af laufabrauðshefð Íslendinga. Jewell nefnir að vegan laufabrauðið smakkist eins og hin venjulegu laufabrauð en það sé stórsniðugt að geta boðið upp á þetta bragðgóða laufabrauð fyrir þá sem eru vegan.