Landsréttur hefur staðfest nálgunarbann Héraðsdóms Austurlands yfir manni sem áreitt hefur fyrrverandi sambýliskonu sína í bæ á Austurlandi eða Austfjörðum. Nokkra athygli vekur að manninum er ekki bannað að fara í verslun þar sem konan starfað en bannað að fara að starfsstöð hennar þar en þetta er orðað svo í ópersónugreinanlegum úrskurðinum, en þar er krafa Lögreglustjórans á Austurlandi eftirfarandi (feitletrun DV):
„…skuli sæta nálgunarbanni í 4 mánuði þannig að lagt er bann við því að hann komi á eða í námunda við heimili brotaþola, A, kt. […], […], eða dvalarstað hennar, hvar sem sá dvalarstaður verður. Miðast þetta við lóðamörk viðkomandi fasteigna. Jafnframt er lagt bann við því að gerðarþoli komi nær brotaþola en 10 metra og jafnframt lagt bann við því að hann veiti henni eftirför, nálgist hana á almannafæri eða setji sig í samband við hana eða börn hennar, með öðrum hætti, þ.m.t. með símtölum, SMS sendingum eða á samfélagsmiðlum. Ef kærði verslar í versluninni […]á […], þegar brotaþoli er þar við störf, skal hann ekki fara […]sem brotaþoli starfar á.“
Í úrskurði héraðsdóms kom fram að maðurinn hefði ofsótt konuna með skeytasendingum úr nafnlausum aðgöngum á Messenger. Konan býr ein með unglingssonum sem eru ekki blóðskyldir manninum en þau voru áður í sambúð. Framferði mannsins hefur truflað einkalíf konunnar og líka starf hennar „á vinnustað þar sem almenningur leggur leið sína og þiggur þjónustu,“ eins og það er orðað í úrskurðinum. Hefur konan mátt þola stanslaust áreiti af hendi mannsins og hefur áreitið haft mjög slæm áhrif á sálarlíf hennar.
Úrskurði Landsréttar og héraðsdóms má lesa hér