Þetta sagði Valery Zaluzhny, yfirmaður úkraínska hersins, í samtali við The Economist. Hann sagðist telja að Rússar séu að undirbúa sókn að Kyiv á nýjan leik og að hún hefjist líklega í vor.
Hann sagði að Rússar séu núna að undirbúa um 200.000 óþreytta hermenn og að í hans huga sé enginn vafi á að þeir eigi að reyna að ná Kyiv á sitt vald.
Hann sagðist einnig hafa áhyggjur af að Rússar hefji stórsókn frá Donbas en þar getur rússneski herinn sótt fram úr austri og suðri eða frá Hvíta-Rússlandi í norðri.
Hann sagðist telja raunhæft að Úkraínumenn geti náð öllu því landsvæði, sem Rússar hafa á sínu valdi, úr þeirra höndum en til þess skorti vopn og því var hann tilbúinn með óskalista.
„Vertu svo vænn að skrifa þetta niður,“ sagði hann við blaðamann The Economist og sagði síðan: „Ég veit að ég get sigrað óvininn en ég þarf 300 skriðdreka, um 600-700 brynvarin ökutæki og 500 stórskotaliðsbyssur.“
Hann sagði einnig að Úkraínumenn séu að undirbúa stóra gagnsókn en skýrði ekki nánar frá hvar eða hvenær hún á að hefjast.
Tony Radakin, yfirmaður breska hersins, sagði í samtali við The Guardian að Rússa vanti skotfæri fyrir stórskotalið sitt og að þetta dragi úr getu þeirra til að sækja fram. Hann sagði að Rússar hafi reiknað með að geta náð Úkraínu á sitt vald á 30 dögum og því hafi þeir misreiknað það magn af vopnum og hermönnum sem þarf í stríðsreksturinn þar. Hersveitir Pútíns séu að komast í þrot, andlega og líkamlega.