fbpx
Sunnudagur 24.nóvember 2024
Fréttir

Rússneskur hermaður sem var í Bucha – „Það voru klikkhausar þar“

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 16. desember 2022 06:02

Lík óbreyttra borgara lágu á götum Bucha þegar Úkraínumenn náðu bænum aftur á sitt vald. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úkraínsk yfirvöld telja að 300 almennir borgarar, hið minnsta, hafi verið drepnir meðan að Rússar höfðu bæinn Bucha á sínu valdi. Stríðsglæpir Rússar þar eru meðal þeirra verstu sem hafa sést í stríðinu í Úkraínu fram að þessu.

Þegar rússneskir hermenn hörfuðu frá bænum, sem er norðvestan við Kyiv, skildu þeir lík almennra borgara eftir á götum og í fjöldagröfum. Skelfingu lostnir bæjarbúar skýrðu frá nauðgunum, ránum og tilviljanakenndum aftökum.

CNN tók nýlega viðtal við einn af rússneskum hermönnunum sem voru í Bucha í vor.

„Þetta eru til klikkhausar sem njóta þess að drepa fólk. Það voru þannig klikkhausar sem voru í Bucha,“ segir hermaðurinn í samtali við CNN.

Hann heitir Nikita Chibrin og er nú á Spáni þar sem hann hefur sótt um hæli en hann gerðist liðhlaupi og komst til Spánar.

Hann var með 64. herdeild rússneska hersins í Úkraínu en henni stýrir Azatbek Omurbekov sem gengur nú undir viðurnefninu „Slátrarinn frá Bucha“. Hann og allir í herdeildinni eru á lista Vesturlanda um þá Rússa sem eru beitti refsiaðgerðum og í Úkraínu eru þeir stimplaðir sem stríðsglæpamenn.

En í Rússlandi heiðraði Vladímír Pútín, forseti, herdeildina fyrir „hetjudáð“ og „hugrekki“.

Chibrin segir í viðtalinu að hann hafi séð nauðganir og rán og þjófnaði með eigin augum en ekki morð á almennum borgurum. Hann segir að herdeildin hafi fengið bein fyrirmæli um að drepa alla þá sem deildu upplýsingum um hvar hún héldi sig. „Ef einhver var með síma, þá höfðum við heimild til að skjóta hann,“ segir hann.

Igor Chibrin. Skjáskot/Twitter

 

 

 

 

 

 

Ekki er annað að sjá en að morð á almennum borgurum hafi viðgengist í bænum á meðan á hernámi Rússa stóð. Þegar vestrænir fréttamenn komu til bæjarins í byrjun apríl, þegar Rússar höfðu hörfað þaðan, sáu þeir minnst 30 lík liggjandi á einni götu. Sum voru með hendurnar bundnar fyrir aftan.

Reuters skýrði frá fjöldagröfum þar sem hendur og fætur stóðu upp úr jörðinni.

Anatoliy Fedoruk, bæjarstjóri, sagði að minnst 300 almennir borgarar hafi verið drepnir á meðan á hernáminu stóð.

Chibrin segir að hermennirnir hafi stolið öllum verðmætum frá bæjarbúum, þar á meðal tölvum, skartgripum og bílum. Þeir hafi síðan selt þýfið í Hvíta-Rússlandi. „Hugarfarið var að ef þú stalst einhverju, þá varstu góður,“ segir hann.

Hann segir að það versta sem hann varð vitni að hafi verið þegar móður og dóttur hennar var nauðgað. Eftir nauðgunina voru hermennirnir tveir, sem nauðguðu þeim, eltir eftir götum bæjarins af yfirmönnum sínum. Þeir voru handsamaðir og barðir en hlutu enga formlega refsingu. „Þeir voru ekki settir í fangelsi. Þeir voru bara reknir,“ segir hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Forviða ferðamaður þegar vél EasyJet flaug yfir eldgosið – „Lífið mitt hefur náð hámarki“

Forviða ferðamaður þegar vél EasyJet flaug yfir eldgosið – „Lífið mitt hefur náð hámarki“
Fréttir
Í gær

Segir Sjálfstæðisflokkinn víst boða skattalækkun á þá efnamestu – „Glittir líka hressilega í undirlægjuhátt Sjálfstæðismanna“

Segir Sjálfstæðisflokkinn víst boða skattalækkun á þá efnamestu – „Glittir líka hressilega í undirlægjuhátt Sjálfstæðismanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigmundur Davíð tjáir sig harkalega um VMA-málið – „Allt einhver fullkomin þvæla frá einstaklingi sem var ekki á staðnum“

Sigmundur Davíð tjáir sig harkalega um VMA-málið – „Allt einhver fullkomin þvæla frá einstaklingi sem var ekki á staðnum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Maður á fimmtugsaldri með gífurlegt magn af þýfi úrskurðaður í gæsluvarðhald

Maður á fimmtugsaldri með gífurlegt magn af þýfi úrskurðaður í gæsluvarðhald