Í vefverslun Boozt finnur þú allt sem þarf til að gera jólin og áramótin að þeim töfratíma sem hann á að vera. Hjá okkur finnur þú jólafötin og gamlársdressið á alla fjölskylduna svo öllum líði eins og nýslegnum túskildingi.
Kæru konur! Hátíðirnar eru tíminn fyrir allar pallíetturnar, glimmerið, glansið og skartið. Loks er er tækifæri til að skarta þínu allra fegursta: Pallíettukjólar og glitrandi jakkar eru klassík um jól og áramót.
Fyrir þær sem kunna betur við látlausari stíl geta skreytt sig með ljómandi skarti, glitrandi hárspöng eða geggjuðum augnskugga.
Karlatískan er ekki síður en svo spennandi og á Boozt.is finnur þú hátíðarfatnaðinn á þig, hvort sem þú er týpan sem kýs einfaldleika, notagildi og þægindi fram yfir glamúrinn, eða nýtir hvert tækifæri til að skarta kjólfötum.
Sokkarnir fást svo að sjálfsögðu einnig á Boozt en forseti vor getur væntanlega fundið sér sokkapör við hæfi á Boozt.
Það er eitthvað æði göldrótt við þennan hátíðlegasta tíma ársins þegar kemur að börnunum. Spenningurinn, barnatrúin og trúin á töfrana og svo gleðin sem þau færa öðrum, allt fallega innpakkað í jóla- og áramótastuðið.
Stór hluti jólagleði barnanna er að velja sér falleg föt og þá snýst allt um glimmerið. Að sjálfsögðu er líka mikilvægt að eiga notalegan kósígalla og náttföt til að smeygja sér í eftir að búið er að taka upp allar gjafirnar á aðfangadagskvöld.
Það styttist óðum í jólin og mörg eigum við eftir að klára jólagjafainnkaupin.
Ef það hljómar ekki freistandi í þínum huga að sitja föst/fastur í umferðarteppu á milli verslanakjarna troðfullum af stressuðu fólki í leit að jólagjöfum, með enga hugmynd um hvað eigi að gefa hverjum, þá eru gjafabréf frá Boozt hin fullkomna jólagjöf. Hægt er að velja á milli 5.000, 10.000 og 15.000 króna inneignar og þiggjandinn getur valið það sem honum eða henni hentar í vefverslun Boozt.is. Gjafabréfið færð þú sent í tölvupósti og þú getur prentað það út sjálf/ur eða sent það áfram á heppinn viðtakanda.