Til stendur að vísa enn einum nemanda í Fjölbraut við Ármúla úr landi í næstu viku. Um er að ræða 18 ára stúlku, en móður hennar og yngri systkini fá að vera áfram, en stúlkan ekki. Skólameistari hefur miklar áhyggjur af málinu.
Stúlkan er 18 ára gömul og frá Pakistan. Hún hefur dvalið hér á landi í 4 og hálft ár en þar sem hún er orðin 18 ára, hefur hún nú fengið tilkynningu um það að henni verði vísaður úr landi. Hún hefur áfrýjað þeirri niðurstöðu. Móðir hennar fær að vera áfram vegna þess að systkini hennar eru yngri en 18 ára, en óljóst er með hvort faðir hennar fær að vera áfram.
Systurnar, Zahraa og Yasameen Hussein, sem komu til landsins í gær ásamt fjölskyldu eftir að brottvísun þeirra var dæmd ólögleg, segja að dvölin í Grikklandi hafi verið erfiða. Þær sóttu einkunnir sínar í Fjölbraut við Ármúla í morgun og byrja í skólanum strax eftir jól.
Framtíð lífs á Jörðinni var rædd á Nóbel ráðstefnu sem haldin var í Stokkhólmi þar sem margir helstu hugsuðir heims voru saman komnir. Meðal þeirra sem tók þátt í umræðunum var forstjóri CCP á Íslandi, við ræðum hvernig hann sér framtíðina.
Og íslensku jólasveinarnir streyma nú til byggða hver á fætur öðrum. Í dag kom Giljagaur sem varð að sjálf sögðu tekið með kostur og kynjum Þjóðminjasafninu.
Fréttavaktin er á dagskrá alla virka daga klukkan 18:30 á sjónvarpsstöðinni Hringbraut, frettabladid.is og dv.is.