Daily Beast segir að yfirmenn hersins hafi missst stjórn á föngunum fyrrverandi og séu margir þeirra nú á flótta.
Í upphafi virstist þetta eflaust vera snilldaráætlun í augum Pútín. Hann lofaði föngunum sakaruppgjöf ef þeir færu á vígvöllinn í Úkraínu og lifðu af sex mánuði þar. Með þessu fékk hann hermenn sem hikuðu ekki við að beita öllum meðulum til að ná markmiðum Pútíns gegn því að þeir fengju frelsi.
Það vakti óhug og ótta þegar fréttist í sumar að hinn illræmdi málaliðaher Wagner væri byrjaður að sækja fanga, í rússnesk fangelsi, til að berjast í Úkraínu. Þeim var lofað peningum og náðun gegn því að fara til Úkraínu að berjast. Markvisst var sóst eftir morðingjum og ræningjum, mönnum sem voru ekki hræddir til að beita ofbeldi.
Ótti við hvað þessir sakamenn væru reiðubúnir til að gera sem málaliðar breiddist hratt út, sérstaklega vegna þess að Wagner-hópurinn stóð að baki fjöldamorðunum í Bucha.
Daily Beast segir að um 20 vopnaðir fangar hafi flúið frá víglínunum í Donetsk á síðustu dögum. Rússneski herinn hóf leit að þeim og hafa fregnir borist af að þrír af föngunum hafi fallið á flóttanum.
Önnur saga sem hefur borist frá vígvellinum er um rússneskan liðhlaupa sem skaut á tvo lögreglumenn og særði. Liðhlaupinn er sagður hafa verið fangi sem var lokkaður til þátttöku í stríðinu.
Fyrir nokkrum vikum bárust fregnir og myndir af hrottalegri aftöku Wagnerliða sem hafði gerst liðhlaupi. Var höfuð hans fest við vegg og hann síðan barinn til bana með sleggju.
Ef marka má frásagnir annarra rússneskra fanga, sem eru á vígvellinum, þá hafa fleiri liðhlaupar verið teknir af lífi fyrir að reyna að flýja. Einnig eru dæmi um rússneska hermenn, sem Úkraínumenn hafa tekið til fanga, sem grátbiðja um að vera ekki sendir til Rússlands. Ástæðan er að þeir óttast að verða teknir af lífi.
Daily Beast segir að sérfræðingar óttist að fangarnir getir reynst venjulegum Rússum „dýrkeyptir“.
Óháði rússneski miðillinn iStories segir að samkvæmt því sem úkraínski hernaðarsérfræðingurinn Alexander Kovalenko segi þá geti það haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir rússneskt samfélag þegar fangarnir snúa heim frá vígvellinum. Þeir muni ekki aðeins snúa aftur eftir að hafa framið glæpi í Rússland og Úkraínu, heldur einnig með áfallastreituröskun sem engir sálfræðingar vilji veita meðferð við.