Hann fjallaði meðal annars um þetta í sjálfsævisögu sinni sem kom út 1999. Þar sagði þáverandi eiginkona hans að hún hefði aldrei séð hann drukkinn.
En miðað við myndbandsupptöku frá síðasta fimmtudegi þá má ætla að Pútín hafi ekki verið alveg edrú þegar hann ræddi við fréttamenn eftir athöfn í Kreml.
Íklæddur dökkum jakkafötum, með rautt bindi og hátt glas í hönd ræddi Pútín við fréttamenn eftir að hann hafði sæmt 12 menn orðum en þá sagði hann vera „rússneskar hetjur“.
Hann ræddi um rangar upplýsingar í tengslum við stríðið í Úkraínu en þar hafa Rússar ráðist á innviði síðustu vikur með þeim afleiðingum að margir landsmenn hafa ekki vatn eða rafmagn.
„Það er mikill hávaði í kringum árásir okkar á orkuinnviði í nágrannaríkinu. Já, við gerum það, en hver byrjaði? Hver réðst á brúna til Krím?“ sagði Pútín sem virðist enn vera öskureiður yfir árásinni á brúna á milli Krím og rússneska fastalandsins þann 8. október.
Hann sagði Úkraínumenn um þjóðarmorð í austurhluta Úkraínu vegna þess að þeir hafa lokað fyrir vatnið til stórborgarinnar Donetsk.
Á upptökunni, sem er hægt að sjá í Twitterfærslunni hér fyrir neðan, vaggar Pútín fram og aftur með glasið í hönd en allt var þetta tekið upp af myndatökumönnum rússnesku ríkisfréttastöðvarinnar TASS.
Drunk putin explains why strikes against Ukrainian infrastructure will continue because "they started first by attacking the Crimean bridge" pic.twitter.com/fQeRuNo4Pu
— Dmitri (@wartranslated) December 8, 2022
Dmitri Masinski, sem rekur heimasíðuna War Translated, rak augun í upptökuna og birti hana á Twitter með enskum texta. Hafa milljónir manna horft á myndbandið síðan það var birt á fimmtudaginn. „Fullur Pútín segir að árásum á úkraínska innviði verði haldið áfram því „þeir byrjuðu þegar þeir réðust á brúna til Krím“, skrifaði Masinski.