fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024
Fókus

Íslandsvinurinn Bam Margera í öndunarvél

Fókus
Föstudaginn 9. desember 2022 12:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn uppátækjasami Bam Margera, sem margir þekkja úr hjólabretta heiminum eða fyrir uppátækin úr raunveruleikaþáttunum Jackass og kvikmyndum sem bygðu á þáttunum, er á sjúkrahúsi að glíma við alvarlegt tilfelli af lungnabólgu í kjölfar COVID-19. Frá þessu greinir TMZ.

Heimildarmenn miðilsins segja að Bam hafi verið lagður inn í San Diego fyrr í vikunni og hafi þá greinst jákvæður fyrir COVID. Læknar hafi í framhaldinu ákveðið að setja Bam í öndunarvél og er hann á gjörgæslu þó ástand hans sé sagt stöðugt.

Bam hefur ekki átt sjö daganna sæla og hefur ítrekað þurft að leita sér aðstoðar á meðferðarstofnunum vegna baráttu sinni við fíknisjúkdóm. Hafa aðdáendur margir haft áhyggjur af hegðun hans undanfarna mánuði en hann hefur verið í virkri fíkn og stundað skemmtanalífið af krafti.

Nýlega fór af stað hreyfing sem kallaði sig #FreeBam, og var í anda hreyfingar aðdáenda söngkonunnar Britney Spears og barðist hreyfingin fyrir því að Britney fengi sjálfræði sitt aftur. Sú barátta bar árangur og hefur Britney getað um frjálst höfuð strokið undanfarið ár.

Bam hins vegar varð nokkuð hissa á þessari hreyfingu, enda er hann, þrátt fyrir fíknisjúkdóminn, en með sjálfræði. Hann hafi þó fengið skipaðan eins konar lögræðismann sem þó hafi bara farið með mál er varði heilbrigði Bam. Óskaði Bam á Instagram síðu sinni eftir því að aðdáendur hættu að áreita fjölskyldu hans enda væri enginn að undiroka hann með neinum hætti. Gekk þetta svo langt að fjölskylda hans og heilbrigðisráðamaðurinn fóru að fá hótanir frá áhyggjufullum aðdáendum sem heimtuðu að Bam fengi frelsið, sem hann hafði þó ekki verið sviptur, aftur.

Bam vakti athygli hér á landi árið 2015 þegar honum lenti saman við rapparann Gísla Pálma á SecretSolstice tónlistarhátíðinni. Gekk myndband af átökunum um netheima og vakti mikla athygli.

Sjá einnig: Maðurinn sem lenti í slag við Gísla Pálma biður um hjálp Dr. Phil

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Stórleikarinn kominn með nýja kærustu upp á arminn – Þremur árum eldri en dóttir hans

Stórleikarinn kominn með nýja kærustu upp á arminn – Þremur árum eldri en dóttir hans
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fatnaður fegurðardrottningar falur

Fatnaður fegurðardrottningar falur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Deitið ætlaði að hafa hann að fífli – „Þessar stelpur héldu að ég væri vitlaus, sem ég er ekki“

Deitið ætlaði að hafa hann að fífli – „Þessar stelpur héldu að ég væri vitlaus, sem ég er ekki“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Nadine ekkert sérstaklega sátt við eiginmanninn sem gleymdi hvenær hún á afmæli

Nadine ekkert sérstaklega sátt við eiginmanninn sem gleymdi hvenær hún á afmæli
Fókus
Fyrir 6 dögum

Fall norskrar konu á Austurlandi vekur mikla kátínu – „Skóladæmi um hvernig á að detta með mýkt“

Fall norskrar konu á Austurlandi vekur mikla kátínu – „Skóladæmi um hvernig á að detta með mýkt“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Sagðist hafa „sónað út“ þegar eiginmaðurinn sagði brandara um líkama hennar

Sagðist hafa „sónað út“ þegar eiginmaðurinn sagði brandara um líkama hennar