Heimsfrumsýning Avatar The Way of Water fór fram í gærkvöldi í London í kvikmyndahúsinu á Leicester Square. Það var stjörnuprýddur gestalisti á forsýningunni og létu leikarar og leikstjórar myndarinnar sömuleiðis sjá sig.
Þar mætti helst nefna þau; Sam Worthington, Zoe Saldaña, Sigourney Weaver, Stephen Lang, Kate Winslet, Joel David Moore, Jamie Flatters, Trinity Jo-Li Bliss, Jack Champion, Brendan Cowell, Bailey Bass, leikstjórinn James Cameron and framleiðandinn Jon Landau. Kvikmyndin verður frumsýnd hér á landi þann 16. desember.
Avatar: The Way of Water gerist um áratug síðar en fyrri myndin og segir frá raunum Sully fjöslskyldunnar er ný ógn stafar af gömlum vágestum. Fjölskyldan unga þarf gefa allt sem hún til þess að tryggja öryggi sitt og annarra sem búa á plánetunni Pandora.
James Cameron er leikstjóri og framleiðandi myndarinnar ásamt meðframleiðandanum Jon Landau. Með aðalhlutverk fara þau Sam Worthington, Zoe Saldaña, Sigourney Weaver, Stephen Lang and Kate Winslet. Handritshöfundar eru James Cameron og Rick Jaffa og Amanda Silver.