Mennta- og barnamálaráðuneytið boðar til ráðstefnunnar Alveg sjálfsagt – sjálfboðaliðar í íþrótta- og æskulýðsstarfi á alþjóðlegum degi sjálfboðaliðans mánudaginn 5. desember kl. 12:00–15:45 á Hilton Reykjavík Nordica.
Á ráðstefnunni verður fjallað um störf sjálfboðaliða og áskoranir hjá samtökum sem reiða sig á störf þeirra. Ráðstefnan verður tekin upp en ekki verður streymt frá henni.
Opnað hefur verið fyrir skráningar og kemst takmarkaður fjöldi að. Skráningu lýkur á miðnætti fimmtudaginn 1. desember. Ráðstefnan er ókeypis og eru allir velkomnir.
Hér má sjá dagskrá ráðstefnunnar.
Hér er hægt að skrá sig.