fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Pressan

Sagðist vera „uppblásinn“ – Læknar fundu ótrúlega hluti í maga hans

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 30. nóvember 2022 21:30

Mynd úr safni. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýlega kom maður á Hangal Sri Kumareshwar sjúkrahúsið á Indlandi og kvartað undan magaverkjum. Hann sagði að honum fyndist hann vera „uppblásinn“. Þegar læknar skoðuðu hann gerðu þeir ótrúlega uppgövtun.

Í maga mannsins fundu þeir 187 smápeninga sem vógu samtals um 1,5 kíló.

Það var því kannski engin furða að maðurinn væri með magaverki og uppköst.

Maðurinn, sem glímir við andleg veikindi, hafði gleypt myntina á tveggja til þriggja mánaða tímabili.

Mirror hefur eftir Eshwar Kalaburgi, lækni, að maðurinn hafi verið með uppköst og magaverki þegar ættingjar hans komu með hann á sjúkrahúsið. Vegna sjúkdómseinkennanna hafi röntgenmyndir verið teknar af maga hans og ristilskoðun framkvæmd. Þá hafi myntin sést. Því hafi verið ákveðið að skera hann upp og fjarlægja myntina.

Aðgerðin tók um tvær klukkustundir. Maðurinn er nú á batavegi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Líf hjónanna breyttist mjög þegar dóttir þeirra gekk í hjónaband með Assad

Líf hjónanna breyttist mjög þegar dóttir þeirra gekk í hjónaband með Assad
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skilur ekki gleðina yfir morðinu sem allir eru að tala um

Skilur ekki gleðina yfir morðinu sem allir eru að tala um