Áhrifavaldurinn Kristján Einar Sigurbjörnsson hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum síðan hann snéri aftur heim eftir 8 mánaða fangelsisvist á Spáni. Sat hann inni að eigin sögn fyrir að stilla til friðar í slagsmálum á næturlífi Malagaborgar. Kristján, sem kallar sig Kleini, hefur lýst fangelsisvistinni sem fullkominni martröð og hefur lýst henni ítarlega í viðtölum sem og á samfélagsmiðlum. Hann opnaði fyrir spurningar frá fylgjendum sínum á Instagram í dag og svaraði þeim eftir bestu getu.
Ein spurningin sem Kristján fékk var hvort hann ætli sér að reyna að „vinna Svölu aftur“ en eins og þekkt er voru þau trúlofuð áður en Kristján lenti í fangelsinu á meginlandinu. Kristján ætlar sér þó greinilega ekki að tjá sig um samband sitt og Svölu miðað við svar hans við spurningunni á Instagram.
„Ég mun aldrei svara neinum spurningum um Svölu, bara svo þið vitið það hér og nú. Ef þið ætlið að spyrja um það þá fáiði engin svör, ekki frá mér.“
Fylgjendur Kristjáns spurðu hann að sjálfsögðu ekki einungis um Svölu heldur var hann einnig spurður mikið út í reynsluna af fangelsinu. Til að mynda spurði einn fylgjandi hvort hann fengi martraðir eftir þetta allt saman og svaraði Kristján því játandi. „Já, ég get ekki sofið, ég sef tvo tíma mögulega á hverri nóttu.“
Þá gefur hann lítið fyrir þá sem saka hann um að vera að ljúga um reynsluna af fangelsinu. „Mér er skítsama hvort fólk trúi þessu eða ekki,“ segir hann. „Ég veit hvað ég gekk í gegnum, ég veit hvað gerðist svo þið sem trúið þessu ekki – I don’t give a fuck.“
Einn fylgjandi bað Kristján svo um að lýsa versta deginum sínum á þessu ári og hann svarar því: „Þegar rafmyntamarkaðurinn hrundi og ég tapaði pening, það var slæmur dagur.“
Sjá einnig: Kristján Einar opnar sig um fangelsisvistina – Í klíku með Pólverjum og stunginn tvisvar