Tónlistarkonan Salka Sól Eyfeld greinir frá því á Facebook að hún hafi um síðustu helgi fengið mögulega undarlegasta símtal sem hún hafi fengið.
Símtalið umrædda var frá aðstoðarmanni utanríkisráðherra og var erindið að biðja Sölku um að redda gjöf handa forseta Úkraínu, en Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra er nú stödd í Kænugarði.
Salka skrifar:
„Fékk mögulega undarlegasta símtal sem ég hef fengið frá aðstoðarmanni ráðherra síðustu helgi. Ég var beðin um að prjóna íslenska lopapeysu fyrir forseta Úkraínu sem honum yrði færð sem gjöf frá utanríkisráðherra. Það er ekki hægt að segja nei við svona bón.“
Svo Salka fékk Sjöfn Kristjánsdóttur prjónasnilling með sér í lið og gerðu þær gott um betur og prjónuðu tvær lopapeysur á fimm dögum, að sögn Sölku með góðri aðstoð frá Eygló Gísladóttur.
„Zelensky fékk svo peysurnar í gær en því miður náðist ekki að taka mynd af honum en vonandi sjáum við hann bregða fyrir í íslenskri lopapeysu en mest vonum við auðvitað að þessu stríði fari að ljúka.“