Á nýjustu myndunum er hún nakin í baðkari og skilur lítið eftir fyrir ímyndunaraflið.
„Ég elska að sökka!! Aldrei faglegar myndir, það er auðvelt fyrir mig að sökka! Haltu áfram að klappa, tík!“ skrifaði hún með myndunum.
View this post on Instagram
Sjá einnig: Ný nektarmynd Britney Spears veldur aðdáendum áhyggjum
Það er óhætt að segja að í hvert skipti sem Britney birti nektarmyndir fá þær mikla athygli. Síðan hún birti myndirnar fyrir fjórtán klukkutímum hafa þær fengið yfir milljón „likes“ og 38 þúsund athugasemdir.
En myndirnar hafa einnig valdið aðdáendum áhyggjum og verið mjög umdeildar. Netverjar hafa haft nóg um málið að segja, eins og 38 þúsund athugasemdirnar gefa til kynna. Sumir vilja meina að svona sé Britney bara og fólk verður að leyfa henni að vera hún sjálf. Aðrir segja að hegðun hennar á Instagram bendi til þess að hún gangi ekki alveg heil til skógar og þurfi aðstoð.
„Ef eitthvað gerist fyrir hana verður sorglegt að vita til þess að það eina sem aðdáendur hennar gerðu var að styðja þessa furðulegu hegðun. Hún er gjörsamlega búin að missa það, svo sorglegt,“ sagði einn netverji.
„Ég er farin að halda að Britney elskar athyglina, sama hvort hún sé góð eða slæm. Hún hefur alltaf fengið hrós fyrir það, að skemmta almenning hvort sem hún sé að vera óþekk eða góð. Hins vegar virka þessar rugluðu myndir og textar eins og mjög opinbert taugaáfall. Hvort sem það er þá er þetta ekki heilbrigt. Við skulum vera til staðar fyrir hana,“ sagði annar.
„Þetta er 100 prósent hún að birta myndirnar en sum ykkar eruð ekki tilbúin til að eiga það samtal. Þið hélduð að hún myndi verða öðruvísi þegar hún losnaði undan forræði föður síns en svona er hún. Ég veit ekki hverju þið áttuð von á,“ sagði ein kona.
„Hver sem styður þessa hegðun ætti að skammast sín. Það er eitthvað virkilega að hérna. Þetta er mjög sorglegt og þetta á eftir að enda sem enn annar Hollywood harmleikurinn,“ sagði önnur.
Sjá einnig: Nýjar nektarmyndir Britney Spears valda usla – „Hver er að taka þessar myndir?“