Árum saman var líf Jamie Rappaport þannig að hún lifði bara frá einni útborgun fram að þeirri næstu. Heimildin á kreditkortinu var nýtt í botn og „undarleg hljóð“ voru farin að heyrast í bíl hennar.
Þegar hún bað móður sína um smá lán til að greiða fyrir viðgerð á bílnum sá hún vonbrigðasvipinn á móður sinni og það ekki í fyrsta sinn. Hún ákvað þá að tími væri kominn til að grípa til aðgerða og breyta þessu.
Hún skýrir frá þessu í bloggfærslu þar sem hún segist hafa fylgt einni einfaldri reglu og með því hafi hún komist úr því að vera sífellt blönk yfir í að eiga dágóðan sparnað.
Reglan sem hún talar um er „þriggja daga reglan“. Í henni felst að maður má ekki kaupa eitthvað ónauðsynlegt fyrr en maður hefur hugsað um kaupin í þrjá daga.
„Ég samdi við sjálfa mig um að ég myndi ekki kaupa neitt ef ég gæti bara notað það einu sinni, t.d. kaffi, skyndibita, skot á barnum, en ef ég vildi enn kaupa þetta eftir þrjá daga gæti ég farið aftur og keypt það,“ skrifar hún og segir að þetta hafi vægast sagt breytt fjárhagsstöðu hennar.
Hún segist ekki vita hversu mörg „skyndikaup“ „þriggja daga reglan“ kom í veg fyrir. Hún segir að auk þess að spara peninga þá hafi reglan sparað henni tíma og hún hafi lést því hún var meðvitaðri um hvað hún lét ofan í sig.
Hún segir að það besta við að fylgja reglunni sé að hún sé ekki lengur stressuð yfir fjárhagsstöðu sinni og mælir hún því með að fólk noti þessa aðferð.
Það er kannski ekki galið á tímum eins og nú þegar allt er dýrt og virðist hækka stöðugt.