Luis Enrique, landsliðsþjálfari Spánar, leyfir leikmönnum að stunda kynlíf dagana fyrir leiki á Heimsmeistaramótinu í Katar.
Hann var spurður út í þetta á blaðamannafundi.
Spánverjar byrjuðu mótið afar vel og unnu 7-0 sigur á Kosta Ríka.
„Kynlíf er eitthvað sem ég tel eðlilegt,“ segir Enrique.
„Svo lengi sem þetta er ekki hópkynlíf daginn fyrir leik. Það væri ekki mjög sniðugt.“
Enrique opnaði sig aðeins um eigið kynlíf einnig.
„Ég tel kynlíf mikilvægt. Sem leikmaður gerði ég það sem þurfti að gera með eiginkonu minni þegar okkur langaði það.“
Næsti leikur Spánar á mótinu er af stærri gerðinni. Liðið mætir Þýskalandi klukkan 19 á sunnudagskvöl að íslenskum tíma.
Þjóðverjar eru með bakið upp við vegg eftir tap gegn Japan í fyrstu umferðinni.