Niðurstöður nýrrar rannsóknar sýna að fyrri rannsóknir hafa vanmetið hversu mikill ís mun bráðna á þessari öld. Fyrir næstu aldamót mun stóri norðausturgrænlenski ísstraumurinn hafa misst sex sinnum meiri ís en fyrri útreikningar sýndu.
Danska ríkisútvarpið hefur eftir Shfagat Abbas Khan, prófessor við DTU Space og einum höfunda rannsóknarinnar, að niðurstaðan hafi komið á óvart. „Við vissum vel að bráðnunin væri hraðari en talið var en ég reiknaði með að hún væri í versta falli tvöfalt hraðari. Að hún sé allt að sex sinnum hraðari er mikið áhyggjuefni að mínu mati,“ sagði hann.
Fyrri rannsóknir byggðust á athugunum við jaðar Grænlandsjökuls. Nýja rannsóknin sýnir að ísinn bráðnar einnig mörg hundruð kílómetra inni í landi að sögn Khan. „Það er hjarta Grænlandsjökuls sem bráðnar. Þetta á sér stað allt að 300 km inni á ísnum,“ sagði hann.
Þessi hraða bráðnun þýðir að yfirborð sjávar hækkar hraðar. Khan sagði að heildarbráðnunin fyrir næstu aldamót muni verða að minnsta kosti einn metri. Á næstu árum verði reiknað út hversu mikil hún verði nákvæmlega.