Þau hafa ekki farið framhjá mörgum, skilaboð sem gengið hafa manna á milli undanfarna daga. Þar má sjá skjáskot úr spjalli ónefndra aðila þar sem varað er við mögulegri hefndarárás á miðborgina um helgina í kjölfar hnífsárásarinnar sem átti sér stað á Bankastræti Club í síðustu viku.
Bandaríska sendiráðið á Íslandi hefur nú hvatt ameríska ríkisborgara að hafa varann á um helgina og forðast hópamyndanir. Á vefsíðu sendiráðsins stendur:
„Íslenska lögreglan hefur staðfest að hún er að rannsaka orðróm um áætlun um glæpsamlegt ofbeldi í miðborginni helgina 25. – 27. nóvember. Sögusagnirnar virðast tengjast átökum milli tveggja hópa sem leiddu til hnífsárásar á reykvískum skemmtistað þann 17. nóvember. Íslenska lögreglan ætlar að hafa aukna viðveru í Reykjavík yfir helgina.“
Síðan er þeim leiðbeiningum beint til fólks að hafa varann á í miðborginni um helgina og forðast stórar hópamyndanir. Eins ef fólk tekur eftir óvenjulegum atvikum ætti að yfirgefa það svæði undir eins. Fólki er eins ráðlagt að fara að ráðleggingum íslensku lögreglunnar, borgaraþjónustunnar og annarra yfirvalda. Fólki er bent á að fylgjast með vel fjölmiðlum, þá einkum fréttaveitu RÚV á ensku sem og fréttum sem birtar í Iceland Monitor.