fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Sprengjurnar sem kastað var á hús í nótt tengdust Bankastræti Club-árásinni

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 23. nóvember 2022 10:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reyksprengju var kastað inn um rúðu á einbýlishúsi í Fossvogi í Reykjavík í nótt. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um klukkan 01 vegna málsins. Um svipað leyti barst útkall vegna tilraunar til að kasta eldsprengju í einbýlishús í Hafnarfirði. Frá þessu var greint hjá Vísi í morgun.

Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn staðfesti í samtali við Fréttablaðið að bæði málin tengist hnífsárásinni sem átti sér stað á Bankastræti Club á fimmtudaginn í síðustu viku. Íbúar beggja húsa voru heima þegar sprengjunum var varpað en engan sakaði.

Margeir segir að lögreglan hafi náð þokkalega utan um árásina sjálfa þó að tveggja eða þriggja aðila sé enn leitað. Lögreglan hafi óttast að árásin hefði afleiðingar á borð við þær sem áttu sér stað í nótt. Enginn hafi verið handtekinn vegna atvikanna í nótt en lögregla leiti þeirra sem stóðu að þessu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

J.D. Vance verður varaforsetaefni Donald Trump

J.D. Vance verður varaforsetaefni Donald Trump
Fréttir
Í gær

Pálmi Þór lést af slysförum á Spáni

Pálmi Þór lést af slysförum á Spáni
Fréttir
Í gær

Fjárfestar hafa sölsað undir sig tæplega 90% seldra íbúða á árinu – „Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“

Fjárfestar hafa sölsað undir sig tæplega 90% seldra íbúða á árinu – „Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“
Fréttir
Í gær

Pawel sakar stjórnvöld um aumingjaskap – „Hvernig væri að kalla stjórnendur þessa miðils í skýrslutöku“

Pawel sakar stjórnvöld um aumingjaskap – „Hvernig væri að kalla stjórnendur þessa miðils í skýrslutöku“