Alls hafa 27 einstaklingar verið handteknir í tengslum við hnífaárásarnir á Bankastræti Club þar sem stór hópur réðst á þrjá einstaklinga um tvítugt og lagði til þeirra með eggvopnunum. Ungu mennirnir slösuðust illa í árásinni en eru þó ekki í lífshættu.
Í hópi hinna handteknu er dyravörðurinn John Pétur Vágseið, sem er á fertugsaldri og sagður reka fyrirtæki sem býður upp á dyravörslu fyrir skemmistaði og ýmsa viðburði. Hann er þó ekki skráður sem eigandi né prókúruhafi í neinu fyrirtæki samkvæmt Fyrirtækjaskrá. Þá hefur hann meðal annars reglulega sinnt dyravörslu fyrir Bankastræti Club en samkvæmt heimildum DV skiptir skemmtistaðurinn ekki lengur við John Pétur og hans fyrirtæki.
Rétt er að geta þess að þó að John Pétur hafi verið í hópi þeirra sem ruddust inn á staðinn þá hefur DV engar heimildir fyrir því að hann hafi beitt vopnum í árásinni en nokkrir af þeim sem einnig tóku þátt í árásinni eru undirmenn hans.
Sumir þeirra hafa starfað fyrir skemmistaðinn Paloma Club en sambýliskona John Péturs, sem einnig var handtekin í aðgerðum lögreglu, sér um rekstur staðarins.
Athygli vekur að John Petur hefur látið sér starfsumhverfi og öryggi dyravarða miklu varða. Í kjölfarið af svívirðilegri árás á dyravörð árið 2018, sem endaði með örkumlun hans, stóð John Pétur fyrir styrktartónleikum fyrir þolandann ásamt kollegum sínum. Þá fór hann á fund Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, á Besstastöðum ásamt félögum sínum þar sem fundarefnið var hversu aukin harka hefði færst í skemmtanalíf Íslendinga, hvaða áhrif það hefði á öryggi og aðstæður dyravarða og hvaða leiðir væru til úrbóta.
Þá hafa fjölskyldumeðlimir hinna grunuðu árásarmannanna., þar á meðal John Péturs, sætt stöðugum hótunum og árásum síðan að Bankastrætis-árásin átti sér stað og einhverjir hafa flúið út á land vegna ástandsins.