fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Eyjan

Össur segir að Bjarni Ben þori ekki í Kristrúnu – „Veit að hann er næstum sloppinn“

Eyjan
Laugardaginn 19. nóvember 2022 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi ráðherrann Össur Skarphéðinsson telur ljóst að Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, hafi ekki kjarkinn til að mæta Kristrúnu Frostadóttur, formanni Samfylkingarinnar.

Össur ritar færslu um þetta á Facebook í framhaldi af umræðunni um það að Bjarni hafi neitað að mæta Kristrúnu í rökræðum í Kastljósi í tilefni af skýrslu Ríkisendurskoðunar um Íslandsbankasöluna.

„Bjarni þorir ekki í Kristrúnu.

Eina ástæðan fyrir því að tókst að koma Íslandsbankamálinu í farveg einhvers konar rannsóknar var skeleggur málflutningur Kristrúnar Frostadóttur. Það voru fyrst og fremst hnífskörp rök hennar sem hröktu Bjarna Benediktsson og ríkisstjórnina á fyrsta flóttann í málinu. Hundléleg stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis virðist ekki ná að greina aðalatriði málsins gegnum moðsuðuna sem skýrsla ríkisendurskoðunar er.“

Össur segir að fyrir vikið hafi vígstaðan í málinu breyst með þeim fáránlega hætti að Bankasýslan „sem mölbraut öll prinsipp um jafnræði og gagnsæi við sölun“ sé farinn að opinberlega hæðast að Ríkisendurskoðun. Össur segir að sama bragði að Ríkisendurskoðun hafi ekki kjarkinn til að rökstyðja mál sitt í fjölmiðlum.

„Bjarni Benediktsson, sem ber ábyrgð á málinu, veit að hann er næstum sloppinn úr fárviðrinu sem í öðrum löndum hefðu leitt til afsagnar.“

Það eina sem Bjarni þurfi að passa núna sé að forðast að lenda á móti Kristrúnu í fjölmiðlum því hún hafi yfirburðatök á efnahagsmálum og sé það vel vitað í Valhöll að Kristrúnu myndi reynast einfalt að „skræla utan af Bjarna falsrökin og blekkingarvefinn sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefndin lætur ríkisstjórnina komast upp með.“

Nú sé það stefna Valhallar að forðast með öllum ráðum að Bjarni þurfi að mæta Kristrúnu vegna málsins.

„Til vara er áróðursmaskína flokksins ræst til að tala Kristrúnu daglega niður í Morgunblaðinu, í pirringspistlum hugmyndafræðinga eins og Björns Bjarnasonar, Brynjars Níelssonar auk annarra smærri pótintáta á netinu.“

Þess vegna hafi Bjarni hafnað því að mæta í Kastljós með Kristrúnu.

„Sjálfstæðisflokkurinn þorir ekki í rökræður við Kristrúnu Frostadóttur um Íslandsbankamálið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur