Tónlist hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Trúbrot var flutt í Eldborgarsal Hörpu um helgina fyrir fullu húsi. Að sjálfsögðu var meistaraverkið LIFUN flutt í heild sinni við mikinn fögnuð áhorfenda, en verkið er 45 ára á þessu ári.
Þrjú flott Gunnar Þórðarson og Shady Owens eru upphaflegir meðliðimr Trúbrots en Magnús Kjartansson bættist við síðar.
Svaka stuð Þórir Úlfarsson, Eva Ásrún Albertsdóttir og Eyjólfur Kristjánsson voru hress í Hörpu.
Flott á sviði Gunnar Þórðarson og Shady Owens hafa engu gleymt.
Fjórir flottir Gunnlaugur Jónsson, Stefán Hilmarsson, Þórir Úlfarsson og Eyjólfur Kristjánsson stilltu sér upp fyrir ljósmyndara.
Hress Kjartan Már Kjartansson, fyrrverandi bæjarritari í Reykjanesbæ, ásamt konu sinni, Jónínu Guðjónsdóttur.
Bræður og konur Baldur Þórir og Júlíus Freyr, synir Rúnars Júlíussonar heitins, mættu ásamt eiginkonum sínum, Þorbjörgu Margréti Guðnadóttur og Guðnýju Kristjánsdóttur.
Feðgar Erlingur Björnsson og sonur hans, Árni Erlingsson, mættu að sjálfsögðu.