Utanríkisráðuneytið sagði að sendiráð Sambíu í Moskvu hafi fengið þetta staðfest hjá rússneskum yfirvöldum.
Saga Nyirenda er óvenjuleg. Hann fékk styrk hjá sambískum stjórnvöldum til að stunda nám í kjarneðlisfræði í Moskvu. Í apríl 2020 var hann dæmdur í níu og hálfs árs fangelsi í Rússlandi að sögn sambíska utanríkisráðuneytisins sem upplýsir ekki fyrir hvað hann var dæmdur.
Hann náði ekki að afplána allan dóminn því hann féll á vígvellinum í Úkraínu þann 22. september.
Stanley Kakubo, utanríkisráðherra Sambíu, sagði að í ljósi þessara dapurlegu örlaga Nyirenda hafi sambísk yfirvöld beðið rússnesk yfirvöld um skýringar á hvernig á því stóð að sambískur ríkisborgari, sem afplánaði fangelsisdóm í Moskvu, hafi endað í rússneska hernum og síðan í Úkraínu.
BBC segir að þetta sé fyrsta staðfesta tilfellið um útlending, sem hefur barist með Rússum, sem hefur fallið í stríðinu.
Rússneski miðillinn Ostoroznjno novosti segir á Telegram að Nyirenda hafi verið handtekinn 2020 fyrir að vera með fíkniefni í fórum sínum. Hann var að sögn handtekinn í Kuskov-almenningsgarðinum í Moskvu á fyrsta skóladegi.
Fram hefur komið að Rússar hafi boðið föngum frelsi gegn því að þeir færu til Úkraínu til að berjast gegn Úkraínumönnum. Ekki er vitað hvort Nyirenda hafi tekið þessu boði í von um að sleppa frá Rússlandi.