fbpx
Mánudagur 15.júlí 2024
Pressan

Stóð eiginmanninn að framhjáhaldi – Segir þetta merkin um að makinn sé kannski að halda framhjá

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 12. nóvember 2022 21:44

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona ein komst nýlega að því að maðurinn hennar til 15 ára var að halda framhjá henni. Hún segir að ákveðin merki geti verið vísbending um að maki þinn sé að halda framhjá.

Konan skýrir frá þessu á vefnum Mamamia og segir að meðal þeirra merkja sem fólk eigi að vera á varðbergi gagnvart séu að makinn skilji símann sinn aldrei við sig og fari skyndilega að klæða sig betur en áður.

Konan réði sér einkaspæjara til að staðfesta grun sinn og tókst honum að finna sönnun þess að hann væri að halda framhjá. Áður hafði maðurinn, sem á börn með konunni, margoft neitað að hann væri að halda framhjá.

Konan segir að hún hafi „þolað“ hegðun eiginmannsins og hafi trúað þeim mörgu afsökunum sem hann kom með en innst inni hafi hún vitað að eitthvað væri að.

Hún segir að eftirtalin 10 atriði sýni að makinn sé „örugglega“ að halda framhjá:

Hann byrjar að fara oft í líkamsrækt.

Hann endurnýja nærfötin sín.

Hann tekur útlit sitt algjörlega í gegn.

Símavenjur breytast, til dæmis fer hann að nota WhatsApp í gríð og erg og síminn er eins og límdur við hönd hans. Hann heldur lykilorði símans leyndu og slekkur á möguleikanum til að sjá hvað var síðast skoðað á Internetinu.

Hann hættir skyndilega að hrjóta.

Hann dregur úr þátttöku sinni í viðburðum með vinum þínum, fer að forðast sameiginlega vini ykkar og „vinnustaðatengdum viðburðum“ fjölgar.

Svarar ekki í símann þegar hann er ekki heima.

Kemur heim angandi af ilmvatni.

Vill ekki snerta þig, vill ekki láta þig snerta sig né stunda kynlíf með þér.

Sýnir lífi þínu enga áhuga lengur og deilir engu um sitt líf með þér.

Hér eru síðan nokkur atriði sem benda til að þú sért hin konan eða hinn maðurinn:

Stefnumót eru ákveðin með skömmum fyrirvara og engar langtímaáætlanir eru gerðar.

Flest símtöl ykkar eru að degi til.

Samskipti ykkar að kvöldi til eru í formi textaskilaboða og svörin berast oft seint.

Þú hefur líklega aldrei komið heim til hans/hennar né hitti vini eða fjölskyldu.

Þið farið ekki á staði nærri heimili hans/hennar.

Hann/hún greiðir líklegast oftast með reiðufé.

Hann/hún fer í vörn ef þú spyrð of mikið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Juno myndaði hrauntjarnir á Io

Juno myndaði hrauntjarnir á Io
Pressan
Fyrir 3 dögum

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Grimmdarleg slagsmál í dýragarðinum í Edinborg kostuðu Rene lífið

Grimmdarleg slagsmál í dýragarðinum í Edinborg kostuðu Rene lífið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Á síðustu 12 mánuðum hafa metin fallið sem aldrei fyrr“

„Á síðustu 12 mánuðum hafa metin fallið sem aldrei fyrr“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga
Pressan
Fyrir 5 dögum

Enn þenst norski olíusjóðurinn út – 234.000 milljarðar

Enn þenst norski olíusjóðurinn út – 234.000 milljarðar