fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
433Sport

Vanda stígur fram eftir orrahríð síðustu daga – „Finnst mér sárast að vegið er að starfsfólki“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 8. nóvember 2022 13:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég tek umræðu síðustu daga mjög nærri mér, enda hef ég, frá því að ég steig mín fyrstu skref í fótbolta, barist fyrir vægi kvennaknattspyrnu. Nú eftir að ég kom til KSÍ er þessi barátta ekki bara á Íslandi heldur einnig í Evrópu. Í áratugi hef ég verið í jafnréttisbaráttu og þau sem mig þekkja vita að ég vil síst að þau skilaboð séu í knattspyrnunni að konur skipti síður máli. Það stingur mig í hjartað,“ skrifar Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ í færslu á Facebook síðu sinni.

Spjótin hafa svo sannarlega staðið að forystu Knattspyrnusambands Íslands síðustu daga. Sambandið hefur fengið mikla gagnrýni fyrir að spila vináttulandsleik gegn Sádí Arabíu. Sambandið samþykkti leikinn gegn því að fá væna summu greidda frá Sádum. Mannréttindabrot þar í landi eru af ýmsum toga og þykir mörgum það óeðlilegt að Ísland taki leik við slíka þjóð.

Eftir leikinn á sunnudag fékk Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði liðsins treyju frá búningastjóra liðsins fyrir að spila sinn 100 landsleik. Birkir Bjarnason og Birkir Már Sævarsson fengu samskonar treyju á síðasta ári þegar þeir klukkuðu 100 leikina. Slík hefð hefur ekki skapast í kvennalandsliðinu og við það eru nokkrar landsliðskonur ósáttar. Dagný Brynjarsdóttir steig fram fyrir skjöldu og lét sambandið heyra það.

Margrét Lára Viðarsdóttir hefur einnig gagnrýnt sambandið fyrir það hvernig staðið var að málum þegar hún hætti að leika með landsliðinu.

Vanda vill útskýra:

Vanda svarar nú fyrir sambandið og skrifar. „Mig langar því að útskýra. KSÍ fylgir reglugerðum sínum um að leikmenn fái heiðursviðurkenningar fyrir 50 og 100 leiki. Hefð er fyrir því að leikmenn sem ná 100 leikjum fái málverk sem afhent er á ársþingi eða við önnur hátíðleg tilefni. Ekkert annað er í verkferlum og reglugerðum KSÍ um þessi mál.

„En hvað þá með þessar treyjur? Fyrir ári síðan fékk einn starfsmaður úr starfsliði A landsliðs karla þá fínu hugmynd að útbúa treyju fyrir Birki Bjarnason og Birki Má Sævarsson, sem báðir voru komnir með 100 leiki. Það er, eftir því sem ég best veit, í fyrsta skipti sem þetta var gert. Þetta er eitthvað sem hann tók upp hjá sjálfum sér. Skemmtileg hugmynd og flott frumkvæði. Þegar Dagný og Glódís náðu þessum merka áfanga í apríl afhenti ég þeim blóm fyrir leikinn í Serbíu. Sá starfsmaður kvennalandsliðsins sem mun sjá um þetta í framtíðinni var ný tekin til starfa í apríl. Hún vissi ekki af treyjunum hjá A karla. Hefði einhver geta sagt henni þetta? Já vissulega, þar á meðal ég sjálf, því ég var viðstödd í Rúmeníu þegar Birkir og Birkir fengu sínar treyjur. En það fórst einfaldlega fyrir. Klaufalegt? Já kannski. Skammarlegt? Nei.“

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður stjórnar KSÍ.

Vinan markvisst í jafnréttismálum:

Vanda sem tók við sem formaður KSÍ fyrir rúmu ári síðan segir að sambandið vinna jafnt og þétta að jafnréttismálum.

„KSÍ vinnur markvisst að jafnréttismálum í öllu sínu starfi og mun halda því áfram. Við erum að gera allt sem við getum. Stundum verða mistök á leiðinni í þessum málum sem og öðrum. Því fer fjarri að ætlunin hafi verið að minnka kvennalandsliðið, því þær eiga að sjálfsögðu virðingu skilið fyrir að leggja allt sitt í að spila fyrir land og þjóð. Þá skoðun hef ég alltaf haft og verið í áratugi að berjast fyrir.
Markmið okkar er jafnrétti. Við erum alltaf að stíga skref þar til að ná betri árangri en augljóst er að við þurfum að vera duglegri að miðla því.
Hver er lærdómurinn, tækifærin, hverju ætlum við að breyta?
1. Í vor hófum við að smíða nýjan ramma utan um það hvenær og hvernig á að heiðra leikmenn sem leggja landsliðskóna á hilluna. Við ætlum að setja allt kapp í að klára þá verkferla og bæta.
2. Hugmyndin með 100 leikja treyjuna er góð, við munum innleiða hana sem fastan lið í báðum A landsliðum okkar.
3. Við munum rýna í þá ferla sem fyrir eru og gera endurbætur ef þörf er á.
Svo vil ég að lokum skora á landsliðsfólk að hafa beint samband við okkur ef eitthvað má betur fara. Starfsfólk og stjórnarfólk KSÍ er boðið og búið að hlusta og taka við ábendingum. Það er alltaf hægt að bæta og breyta.
Í þeirri orrahríð sem nú er finnst mér sárast að vegið er að starfsfólki KSÍ, sem vinnur af heilindum, metnaði – oft myrkranna á milli – að framþróun fótboltans á Íslandi. Ég hef aldrei kynnst starfshópi sem helgar sig starfi sínu með sama hætti og þessi frábæri hópur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Skotinn hrósar Gylfa Þór fyrir komandi einvígi – „Munum allir eftir honum“

Skotinn hrósar Gylfa Þór fyrir komandi einvígi – „Munum allir eftir honum“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Skellur fyrir United – Áhuginn hverfandi

Skellur fyrir United – Áhuginn hverfandi
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

De Gea fengið nokkur tilboð en útilokar eitt þeirra alfarið

De Gea fengið nokkur tilboð en útilokar eitt þeirra alfarið
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Guardiola rennir stoðum undir fréttir síðustu daga

Guardiola rennir stoðum undir fréttir síðustu daga
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Nóg að gera á skrifstofu Manchester United – Þrjú ný nöfn nú á blaði

Nóg að gera á skrifstofu Manchester United – Þrjú ný nöfn nú á blaði
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Gummi Ben veltir því upp hvort Pálmi hafi með þessu verið að senda æðstu mönnum vestur í bæ skýr skilaboð

Gummi Ben veltir því upp hvort Pálmi hafi með þessu verið að senda æðstu mönnum vestur í bæ skýr skilaboð
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Biðst innilega afsökunar á mjög óviðeigandi ummælum: Líkti honum við einhverfan einstakling – ,,Ætlaði aldrei að segja þetta“

Biðst innilega afsökunar á mjög óviðeigandi ummælum: Líkti honum við einhverfan einstakling – ,,Ætlaði aldrei að segja þetta“
433Sport
Í gær

Einn sá besti er ekki launahæstur í deildinni – Situr í þriðja sæti

Einn sá besti er ekki launahæstur í deildinni – Situr í þriðja sæti
433Sport
Í gær

Mynd af stjörnu EM vekur töluverða athygli – Heldur mikið upp á fyrrum leikmann liðsins

Mynd af stjörnu EM vekur töluverða athygli – Heldur mikið upp á fyrrum leikmann liðsins
433Sport
Í gær

Íslenskur dómarakvartett í Belfast

Íslenskur dómarakvartett í Belfast