Fíkniefnamál eru misstór en eitt mál sem getið er um í Lögbirtingablaðinu í dag hlýtur að fara í flokk minniháttar fíkniefnamála. Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum birtir þar manni fyrirkall og ákæru en það er gert þegar ekki tekst að ná sambandi við sakborninga til að birta þeim ákæru.
Maðurinn er ákærður fyrir að hafa haft í fórum sínum 1,47 g af hassi. Magnið er svo lítið að það flokkast sem neysluskammtur. Í ákæru, sem birt er í Lögbirtingablaðinu, segir að efnin hafi fundist innanklæða hjá manninum og í farangri hans við leit sem framkvæmd var á Lögreglustöðinni í Vestmannaeyjum, þann 9. janúar á þessu ári.
Lögreglustjóri krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar en málið verður þingfest hjá Sýslumanninum í Vestmannaeyjum þann 8. desember næskomandi. Vanalega eru sakamál þingfest og tekin til meðferðar hjá héraðsdómstólum en Vestmannaeyjar falla undir Héraðsdómstól Suðurlands sem er á Selfossi.
Maðurinn er erlendur en í fyrirkallinu er hann hvattur til að mæta hjá sýslumann í desember. Þar segir orðrétt:
„Ákærði er kvaddur til að koma fyrir dóm, hlýða á ákæru, halda uppi vörnum og sæta dómi. Sæki ákærði ekki þing má hann búast við því að fjarvist hans verði metin til jafns við það að hann viðurkenni að hafa framið brot það sem hann er ákærður fyrir og dómur verði lagður á málið að honum fjarstöddum. Birtingarfrestur er þrír sólarhringar.“