Þetta segir bandaríska hugveitan Institute for the Study of War (ISW) en hún fylgist náið með þróun mála í stríðinu í Úkraínu og málum því tengdu.
Það var varnarmálaráðherrann Sergei Shoigu sem birtist á skjám rússneskra sjónvarpsáhorfenda ásamt Pútín. Þetta vakti athygli því Shoigu hefur verið gerður að blóraböggli fyrir hrakförum Rússa í stríðinu og það án þess að Pútín hafi gripið inn í og komið honum til varnar.
„Pútín hefði getað tilkynnt um lok herkvaðningarinnar sjálfur í stað þess að hafa Shoigu með eða á fundi með Shoigu eða falið Shoigu að tilkynna um lok hinnar misheppnuðu herkvaðningar,“ segir ISW.
Segir hugveitan að þetta sé skýrt merki um að Pútín sé farinn að hafa áhyggjur af miklum áhrifum hinna svokölluðu „silovki“ sem eru valdamenn í innsta hring öryggisþjónustunnar og hersins. Þetta viðurnefni er nýlega tilkomið.
ISW segir að þetta eigi ekki síst við um olígarkann Yevgeny Prigozhin sem er eigandi málaliðafyrirtækisins Wagner sem útvegar rússneskum stjórnvöldum málaliða til að annast aðgerðir víða erlendis. Wagner tekur virkan þátt í stríðinu í Úkraínu. ISW hefur áður sagt að Prigozhin virðist nú vera í einstakri stöðu, stöðu sem gerir honum kleift að takast á við einkarétt Pútíns á völdum.
Þetta getur hann því Pútín er háður málaliðum hans og vegna mikilla vinsæla Prigozhin í Rússlandi. Hann er með mikinn fjölda fylgjenda á samfélagsmiðlinum Telegram. ISW segir að hann hafi notað þetta tvennt til að auka völd sín og áhrif, meðal annars með því að gagnrýna Shoigu og varnarmálaráðuneytið beint fyrir hvernig staðið hefur verið að stríðsrekstrinum. Þetta hefur hann að sögn bæði gert opinberlega og í einkasamtölum við Pútín.
ISW telur að Pútín vilji fá Shoigu meira fram í dagsljósið aftur til að mynda ákveðið valdajafnvægi á milli „siloviki“ og hins hefðbunda valdahóps sem Shoigu tilheyrir.