Landsréttur staðfesti í gær, föstudag, dóm héraðsdóms frá vorinu 2021 þar sem Verði tryggingavfélagi var gert skylt að greiða ungum manni sem lenti í umferðaróhappi fullar bætur úr slysatryggingu ökumanns. Lögmaður mannsins sem lagði Vörð bæði í Landsrétti og héraðsdómi er Ómar R. Valdimarsson.
Bílslysið varð árið 2017. Forsagan er sú að ungi maðurinn keypti sér laskaðan bíl á 20 þúsund krónur, í því skyni að gera hann upp. Daginn eftir kaupin prufukeyrði hann bílinn í Krýsuvík en svo illa fór að hann velti bílnum og var nokkuð slasaður eftir óhappið. Bíllinn valt á þakið, maðurinn var í bílbelti en loftpúðar blésust ekki út. Eftir slysið fékk maðurinn sting í mjóbakið þegar hann lyfti handleggjunum. Var hann greindur með tognun í brjósthrygg og lendahrygg, auk þess að vera með mar á hendi.
Maðurinn taldi sig eiga rétt á bótum úr slysatryggingu ökumanns hjá Verði tryggingum hf. Tryggingafélagið taldi hins vegar að maðurinn hefði velt bílnum viljandi og kærði hann til lögreglu fyrir tryggingasvik. Maðurinn sat því uppi með bæði líkamlega áverka og lögreglukæru. Lögregla rannsakaði málið og felldi það svo niður og taldi ekki um svik að ræða. Þrátt fyrir þetta neitaði Vörður að greiða unga manninum bætur úr tryggingunni og taldi manninn ekki hafa sýnt fram á að hann hefði orðið fyrir bótaskyldu tjóni.
Vörður hélt sig við þann málflutning að maðurinn hefði velt bílnum viljandi eða af stórkostlegu gáleysi og þar með væri félagið ekki bótaskylt. Gáleysisásökuninni til stuðnings telur tryggingafélagið vera að bíllinn hafi í raun ekki verið í ökuhæfu ástandi. Það var mat dómsins eftir skoðun gagna og vitnisburðar, meðal annars frá starfsmanni fyrirtækisins sem sá um að draga bílhræið burtu af vettvangi, að slysið hefði ekki verið viljaverk. Segir meðal annars í dómsorði að ekkert liggi fyrir um að ástand bílsins hafi verið slíkt að jafna megi akstri á honum til stórkostlegs gáleysis.
Hvorki héraðsdómur né Landsréttur féllust á að um tryggingasvik hefði verið að ræða og töldu Vörð tryggingafélag vera bótaskylt í málinu. Tryggingafélagið þarf jafnframt að greiða áfrýjunarkostnað vegna reksturs málsins fyrir Landsrétti, 1 milljón króna.