fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Matur

Hrekkjavökukaka eins og þær gerast bestar – dásamlega mjúk súkkulaðikaka í hrekkjavökubúning

Sjöfn Þórðardóttir
Fimmtudaginn 27. október 2022 09:43

Hrekkjavökukakan hennar Maríu er alveg hræðilega góð og bráðnar í munni. Ekki leiðinlegt að fá þessa í tilefni Hrekkjavökunnar ógurlegu sem framundan er. MYNDIR/MARÍA GOMEZ.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hrekkjavakan er framundan en mánudaginn 31.október er stóri dagurinn. Margir munu taka forskot á sæluna um helgina og halda hrekkjavökupartí og útbúa hrekkjavökukræsingar sem bæði gleðja og trylla. Hér er ein ótrúlega ljúffeng súkkulaðikaka í hrekkjavökubúning sem er vel þessi virði að baka og njóta. Hver og einn getur skreytt hana að vild og leikið sér með allskonar skriðdýr, óvætti eða hvað eina sem hugmyndaflugið býður upp á. Uppskriftin kemur úr smiðju eldhúsgyðjunnar Maríu Gomez sem heldur úti bloggsíðunni www.paz.is

Kakan er í hrekkjavökubúning, skreytt með hinum fallega appelsínugula lit sem er einkennandi fyrir hrekkjavökuna og haustið.

„Þessa uppskrift af súkkulaðiköku er ég búin að eiga í fjöldamörg ár, en hún er mín allra uppáhalds súkkulaðikaka,“ segir María. Kakan er mjög dökk og bragðmikil en jafnframt afar létt og mjúk í senn. „Upprunalega uppskriftin er fengin hjá prestshjónum í Alabama sem vinkona mín dvaldi hjá á sínum tíma. Uppskriftina fékk ég svo hjá vinkonu minni, en ég ákvað að breyta nokkrum atriðum í henni og varð hún enn betri,“ segir María sem er einstaklega ánægð með útkomuna.

María notast bara við skál og sleikju en henni finnst best að gera hana án hrærivélar því þannig tryggi hún að kakan verði ofsalega mjúk og ekki of seig.

Hægt er að nota þessa uppskrift í tvo 26 cm botna og setja þá krem á milli og ofan á. Eða að gera hana eins og ég gerði en ég setti hana í hringlótt formkökumót með gati í miðjunni, en það þarf að vera í stærri kantinum.

Hrekkjavökukakan hennar Maríu

400 g sykur

220 g hveiti

75 g bökunarkakó dökkt

1,5 tsk. lyftiduft

1,5 tsk. matarsódi

1 tsk. fínt borðsalt

2 egg

250 g súrmjólk

75 g matarolía

2 tsk. vanilludropar

200 g sjóðandi heitt kaffi (ég set yfirleitt bara 200 gr/ml af sjóðandi vatni í bolla og hræri 1 tsk. instantkaffi út í, það kemur ekki kaffibragð af kökunni heldur bara dýpkar súkkulaðibragðið).

100 g súkkulaðidropar dökkir (myndi sleppa ef bakaðir eru tveir botnar, nota bara í formkökuna).

Kremið

125 g mjúkt smjör

210 g flórsykur

65 g hvítt súkkulaði

1 tsk. vanilludropar

2 msk. rjómi

appelsínugulur matarlitur

Kakan

Byrjið á því að hita ofninn á 175 °C blástur eða 185°C án blásturs. Setjið öll þurrefnin saman í skál og hrærið létt saman með sleikju. Bætið næst eggjum, olíu, vanilludropum og súrmjólkinni saman við og hrærið létt saman þar til verður að kekkjóttu klístruðu og þykku deigi en ekki hræra of mikið. Hellið svo sjóðandi heitu kaffinu saman við og hrærið varlega saman með sleikju þar til deigið er þunnt og fallega glansandi, reynið að komast af með að hræra sem minnst eða bara þar til allt er rétt blandað saman. Bætið síðast við súkkulaðidropum og hrærið létt saman. Smyrjið næst form mjög vel að innan með þykku lagi af smjöri, ef þið notið fomkökuform þarf líka að sáldra smá hveiti inn í það yfir smjörið og hrista allt umframhveiti af. Ef þið ætlið að gera tvo botna í 26 cm hringformum þá er nóg að smyrja bara að innan með smjöri. Bakið í 45-50 mínútur en gott er að stinga prjón í miðja kökuna og ef hann kemur hreinn upp úr er kakan til. Ef þið ætlið að baka 2x 26 cm botna er nóg að hafa hana í ofninum í 35 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn upp úr. Látið kólna vel áður en kremið er sett á.

Kremið

Bræðið súkkulaðið og látið það kólna ögn án þess að það stífni aftur (best að bræða yfir vatnsbaði). Þeytið mjúkt smjörið á miðlungshraða þar til það verður ögn loftkennt, bætið þá flórsykrinum smátt og smátt út í svo hann fuðri ekki upp um allt. Bætið næst rjóma, vanilludropum og súkkulaðinu ásamt matarlitnum út í og hrærið þar til kremið verður loftkennt og mjúkt. Ég tók plastsprautupoka og klippti gat á hann en notaði engan stút og sprautaði svo kreminu á í svona ræmur. Ef þið ætlið að gera tvo botna með kremi á milli og allt um kring er betra að tvöfalda kremuppskriftina til að hafa nóg krem. Síðan skreytið þið kökuna og umgjörðina að vild.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
28.01.2024

Olympíuleikarnir í matreiðslu hefjast á laugardag – Íslenska kokkalandsliðið ætlar í verðlaunasæti

Olympíuleikarnir í matreiðslu hefjast á laugardag – Íslenska kokkalandsliðið ætlar í verðlaunasæti
Matur
25.01.2024

Eldabuskan breytir matarvenjum fólks

Eldabuskan breytir matarvenjum fólks
Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
02.11.2023

B.L.T. með twisti

B.L.T. með twisti
Matur
01.11.2023

BBQ kjúklingasalat með mangó, fetaosti og nachoskurli

BBQ kjúklingasalat með mangó, fetaosti og nachoskurli
Matur
29.10.2023

Snúðahringur með hnetusmjörs- og Dumle karamellufyllingu

Snúðahringur með hnetusmjörs- og Dumle karamellufyllingu