Rússar hafa verið útilokaðir frá alþjóðlegum greiðslukerfum og hafa unnið hörðum höndum að því að breiða sitt eigið greiðslukerfi, Mir, út.
Allt þar til ágúst gátu rússneskir ferðamenn notað rússnesku greiðslukortin sín hraðbönkum í Tyrklandi og til að greiða fyrir vörur og þjónustu. En nú hafa tyrkneskir bankar, aðallega vegna þrýstings frá Bandaríkjunum, skorið á böndin við Mir.
Mir var þróað af rússneska seðlabankanum og var svar hans við Visa og Mastercard greiðslukortunum.
Tyrkir hafa ekki gripið til refsiaðgerða gegn Rússum og því gátu Rússar notað greiðslukortin sín þar í landi. Á Vesturlöndum óttuðust margir að Rússar myndu nota Tyrkland sem bakdyr inn á fjármálamarkaðina og að Mir myndi ná til enn fleiri landa. Til dæmis sögðu egypsk stjórnvöld nýlega að Mir yrði tekið upp þar í landi. Einnig eru mörg ríki í Miðausturlöndum, Afríku og Asíu sögð vera að hugleiða það.
Til að bregðast við þessu tilkynnti bandaríska fjármálaráðuneytið í september að hætta væri á að fleiri ríki myndu taka upp samband við Mir og sagði um leið að Bandaríkin séu reiðubúin til að beita hörðum refsiaðgerðum gegn fyrirtækjum og stofnunum sem hjálpa Rússum að fara á svig við refsiaðgerðir Vesturlanda. Í kjölfarið hafa allir tyrkneskir bankar slitið tengl sín við Mir.
Hótanir Bandaríkjamanna geta einnig sett strik í reikninginn fyrir vonir Rússa um að ná að breiða Mir út til fleiri ríkja. Þetta sagði Maria Shagina, hjá Den Internationale Institut for Strategiske Studier í Danmörku, í samtali við Jótlandspóstinn.