Þetta segir Boris Bondarev, fyrrum stjórnarerindreki hjá rússnesku utanríkisþjónustunni, í grein í Foreign Affairs. Í greininni fer hann yfir stöðu mála eins og hún blasir við honum.
„Utanaðkomandi greinendur njóta þess hugsanlega að sjá Rússa glíma við mikla pólitíska krísu innanlands. En þeir ættu að hugsa sig um tvisvar áður en þeir óska þess að sjá Rússland springa. Ekki aðeins af því að það gæti komið risastóru kjarnorkuvopnabúri Rússlands í ótryggar hendur,“ segir hann og bætir við að, að hans mati lifi flestir Rússar við „erfitt andlegt ástand sem fátækt og stórir skammtar af áróðri, setja mark sitt á“. Á þess áróður ýtir undir hatur, ótta en um leið tilfinningu um yfirburði og að vera ósjálfbjarga að hans mati.
„Ef landið brotnar í hluta, mun það ýta þeim fram af brúninni. Rússar munu hugsanlega fylkjast að baki enn herskárri leiðtoga en Pútín og það getur endað með borgarastyrjöld eða enn meiri árásargirni eða hvoru tveggja,“ segir hann.