Hópur háhyrninga sést elta hákarla í klukkustund undan strönd Mossel Bay sem er hafnarbær í Western Cape héraðinu.
Alison Tower, hákarlasérfræðingur hjá Marine Dynamics Acadeym í Gansbaai, er aðalhöfundur rannsóknarinnar. Hún segir að hegðun af þessu tagi hafi aldrei áður sést í svona miklum smáatriðum og örugglega aldrei úr lofti.
Myndbandið var tekið upp í maí. Á því sést þegar fimm háhyrningar elta og drepa hvíthákarl. Vísindamenn telja að háhyrningarnir hafa drepið þrjá hvíthákarla til viðbótar í þessari veiðiferð sinni.
Simon Elsen, sjávardýrafræðingur og meðhöfundur rannsóknarinnar, sagði að háhyrningar séu mjög greind dýr og félagslynd. Veiðiaðferðir hópsins geri þá að ótrúlega skilvirkum rándýrum.
Áður var vitað að háhyrningar, sem eru topprándýr sjávarins, veiða aðrar hákarlategundir en lítið var um sannanir fyrir árásum þeirra á hvíthákarla.
Í rannsókninni var ekki skoðað hvað liggur að baki þessari hegðun.
Vitað var að einn háhyrninganna hafði ráðist á hvíthákarla áður. Vísindamennirnir telja að þetta bendi til að árásir af þessu tagi séu að breiðast út en fyrri rannsóknir hafa sýnt að háhyrningar geta lært af hver öðrum. The Guardian skýrir frá þessu.
Fram kemur að hákarlar hafi horfið af svæðinu eftir árásina og hafi aðeins einn hvíthákarl sést þar næstu 45 daga.