fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Fókus

Eign dagsins – Skemmtilega bjart ris í Hlíðunum

Fókus
Mánudaginn 17. október 2022 16:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skemmtilega öðruvísi risíbúð er nú til sölu í Barmahlíð, en þar er bæði hátt og lágt til lofts og mikið af einstökum smáatriðum sem setja sérstakan blæ á eignina.

Eldhúsið er einstaklega smekklegt þar sem innrétting er hvít til að rýmið virðist stærra en þó gefinn svipur með smá snefil af við á brúnum og á skúffum.

Í loftinu er svo málaður viður sem gefur því fallegan svip og gluggi hátt í loftinu hleypir inn enn meiri birtu í rýmið sem var bjart fyrir.

Eignin er 4ra herbergja og er skráð um 75,2 fermetrar að stærð en er þó með stærri gólfflöt þar sem hluti er undir súð. Eins er milliloft ekki fermetratölunni. Svefnherbergin eru þrjú og rúmgóð en það er alrýmið sem er aðalstaðurinn enda gefur súðin í bland við aukna lofthæð gífurlega skemmtilegan svip.

Ásett verð eru 69,9 milljónir.

Nánar má lesa um eignina á Fasteignavef DV

Mynd/Fasteignaljósmyndun
Mynd/Fasteignaljósmyndun
Mynd/Fasteignaljósmyndun
Mynd/Fasteignaljósmyndun
Mynd/Fasteignaljósmyndun
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Beverly Hills höll Bennifer formlega komin í sölu – Sjáðu myndirnar

Beverly Hills höll Bennifer formlega komin í sölu – Sjáðu myndirnar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Eddie Vedder segist hafa verið hætt kominn – Pearl Jam hættu við tónleika í London sem margir Íslendingar ætluðu á

Eddie Vedder segist hafa verið hætt kominn – Pearl Jam hættu við tónleika í London sem margir Íslendingar ætluðu á
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikarinn steinrunninn á meðan myndband af eftirmála voðaskotsins var spilað

Leikarinn steinrunninn á meðan myndband af eftirmála voðaskotsins var spilað