Karlmaður var í dag sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir umferðarlagabrot og tvö þjófnaðarbrot. Málið er sérstakt að því leitinu til að maðurinn náðist í öllum þremur tilvikunum á myndband brjóta af sér, en neitaði því staðfastlega að hann væri maðurinn á upptökunum. Eins var manninum ekki gerð refsing.
Manninum var gert að sök að hafa í mars á þessu ári stolið heyrnartólum af gerðinni Happy Plugs úr verslun ELKO í Skeifunni. Upptaka lá fyrir í málinu þar sem sjá mátti manninn koma inn í verslunina, sækja heyrnartólin úr hillu, taka þau úr umbúðum, stinga þeim svo inn á sig, setja svo tómar umbúðirnar aftur upp í hillu og því næst ganga út úr versluninni án þess að greiða fyrir heyrnartólin.
ELKO kærði brotið til lögreglu og sýndi þeim upptökuna og taldi lögregla ljóst hvaða maður væri þar á ferð. Við yfirheyrslu sagðist maðurinn ekkert kannast við málið. Hann hefði engu stolið. Er honum voru sýndar prentaðar ljósmyndir úr eftirlitsmyndavélakerfi kvaðst hann ekki vera sá maður sem þar sást.
Lögreglumaður bar vitni og sagði manninn hafa verið „auðþekkjanlegan á þeim upptökum“ og taldi lögreglumaðurinn „augljóst að ákærði sjáist þar stela umræddum heyrnartólum og þar væri á ferð sami einstaklingur og hann hefði yfirheyrt“
Dómari skoðaði upptökurnar líka og sagði þær sterklega benda til að þar væri maðurinn á ferð. Því væri að engu hafandi frásögn mannsins hjá lögreglu þar sem hann neitaði að hafa verið á staðnum.
„Dómurinn hefur gaumgæft myndbandsupptökur af ferðum ákærða í ELKO og telur engan vafa leika á því að ákærði sjáist stinga heyrnartólunum inn á sig áður en hann hverfur í átt að útgöngudyrum verslunarinnar.“
Manninum var einnig gefið að sök að hafa ekið á 77 kílómetra hraða þar sem leyfður hámarkshraði var 60 km/klst. Á svart-hvítri mynd sem náðist af brotinu sást maðurinn. Hann kvaðst þó ekki þekkja sjálfan sig á myndinni. Eigandi bílsins þekkti. þó manninn af myndinni.
Dómari skoðaði myndina og bar saman við aðrar myndir í málinu og auk þess kom ákærði fyrir dómara í september.
„Er að áliti dómsins engum blöðum um að fletta að veruleg líkindi eru með ákærða og þeim manni sem sést aka [bílnum] umrætt sinn.“
Að lokum var maðurinn sakaður um að hafa aftur, nú í maí á þessu ári, farið inn í ELKO og stolið þar heyrnartólum af gerðinni Bose quite comfort.
Aftur lá fyrir upptaka úr öryggismyndavél og taldi lögregla sig kannast við manninn sem hin meinta þjóf og var hann yfirheyrður. Sem fyrri daginn kannaðist maðurinn ekkert við málið og sagðist engu hafa stolið umræddan dag. Kannaðist hann ekki við sjálfan sig á prentuðum ljósmyndum úr eftirlitsmyndavélakerfi ELKO.
Aftur kom lögreglumaður fyrir dóm og sagði manninn auðþekkjanlegan á upptökunum. Dómari taldi heldur engan vafa leika á því að þar væri umræddur maður á ferð og var hann fundinn sekur.
Áður en mál þetta var dómtekið var maðurinn dæmdur í sjö mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir ránsbrot og tilraun til þjófnaðar, auk umferðar og vopnalagabrota. Því ætti að dæma manninum hegningarauka sem samsvari þeirri þyngingu refsingar sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin í fyrra málinu.
Að því gættu taldi dómari ekki ástæða til að gera manninum frekari refsingu og dómsorð varð því eftirfarandi:
Ákærða, [nafn mannsins], er ekki gerð refsing“